Fálkinn - 11.07.1966, Blaðsíða 8
Bardot kroppur
Hér með eru aðdácndur B. B. sviptir draum-
sýn sinni. Leikkonan Brigitte Bardot, sem
hefur séð frægðarsól sína hækka eftir því
sem fötunum hefur fækkað, notar staðgengil
í nektaratriðum. Það var þegar verið var að
kvikmynda sögu eftir Moravia, að Brigitte
átti að skreppa í bólið með mótleikara sín-
um, Jack Palance. En B. B. neitaði og sagði:
— Ég fer aldrei úr meiru en pilsinu. Þá var
náð í nektardansmær úr Lidoklúbbnum í
París, Maud Chapel, sem kippti sér ekki upp
við að sýna þær útlínur sem með þurfti.
Ágóftinn var lítill, en ánægjan þeim mun meiri
Þau fengu aðeins einn dollar í kaup, en ánægjan af starfinu var óborgan-
leg. Marcello Mastroianni, Rita Hayworth, Yul Brynner og Terence Young
leikstjóri stóðu í sameiningu að sakamálamyndinni „Valmúinn er aðeins
til augnayndis!“ Hagnaðurinn af kvikmyndinni rennur allur til Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
... og það er fall mikið. Hvorki meira né minna en fimmfalt fall.
8
FALKINN