Fálkinn - 11.07.1966, Síða 21
helzt sitja og borða allan daginn. Hún
er líka vitlaus í sælgæti. Og nú neyð-
ist hún til að lifa á hrásalati og mögru,
glóðarsteiktu kjöti. Hún hugsar um mat
frá morgni til kvölds. Ef hún er spurð
hvort hún sé úrill eða fjörug á morgn-
ana svarar hún: „Þegar ég má fá mér
góðan morgunverð er ég sprellandi kát,
en ef ekki. ..“ Og sé hún spurð hvort
hún þjáist nokkurn tíma af þunglyndi:
„Já, mikil ósköp, þegar ég er á megr-
unarkúr græt ég út af hverju sem er.“
Hún talar með barnslegri einfeldni um
mat og drykk, alveg eins og hún talar
um karlmenn.
Hún vill hafa þá fallega, hrausta og
nokkrum árum eldri en hún er sjálf.
Ekki mega þeir vera nízkir, því að
sparnað þolir hún ekki. Og ekki drottn-
unargjarnir eða afbrýðisamir, skapbráð-
ir eða nöldursamir. „Þegar ég er með
eiginmanni eða vini vil ég ekki eyða
tímanum í þras og rifrildi. Ég vil, að
allt sé tóm ást og hamingja, gleði og
gott skap. Aldrei hef ég rofið samband
mitt við nokkurn mann — þeir verða
alltaf fyrri til, ég veit ekki hvers vegna.
En þeir þoldu ekki, að ég færi út með
öðrum mönnum og skemmti mér, þá
urðu þeir reiðir og afbrýðisamir og
reyndu að hefta frelsi mitt, og það
þýddi auðvitað ekki baun. Á endanum
ruku þeir burt bálvondir og létu sem
allt væri mér að kenna.“
IRA prinsessa hefur verið gift tvisvar
fyrst Alfonso di Hohenlohe og síðan
Baby Pignatari sem báðir skildu við
hana, og hún á tvo syni. Sjálf er hún
laus við afbrýðisemi, en hún vill hafa
ástina tóma skemmtun og rómantík og
hvergi lifa nema uppi í skýjunum, og
það eru fáir karlmenn sem ekki þreyt-
ast á slíkri tilveru til lengdar.
Nú ætlar hún að feta í fótspor Sorayu,
en vonandi tekst henni betur á leik-
listarsviðinu en keisaradrottningunni
fyrrverandi. Kvikmyndaframleiðandinn
Dino De Laurentiis sem ætlaði sér að
gera Sorayu að stjörnu þangað til í ljós
kom, að hún hafði enga hæfileika, er
sannfærður um, að betur muni takast
með Iru. Það er ekki víst, að allar prins-
essur séu gersneyddar leikgáfu, og
fallegar eru þær báðar, Soraya og Ira.
Ira er 1.77 á hæð og 62 kíló á þyngd
þegar hún heldur sér í skefjum. Þó að
hún klæði sig samkvæmt nýjustu tízku
er fegurð hennar á einhvern hátt tíma-
Framh. á bls. 39.
21
FALKINN