Vikan - 30.05.1963, Blaðsíða 14
Á stóru myndinni bls. 22 er lítið samlitt brjóst sett í kjólinn, en fallegast er að hann sé svartur. Á þann hátt er hægt að nota hann sem kvöldkjól, og fara allir skartgripir
vel við svo einfaldan kjól. — Á annari myndinni er hann skemmtilegur síðdegiskjóll, þar sem hvítri pífu hefur verið komið fyrir í hálsmálinu. — Á þeirri þriðju
er hann svo orðinn að hentugum kjól á skrifstofuna, en þá er notað við hann smáköflótt brjóst, á fjórðu myndinni cr notuð við hann einföld og hreinleg hvít blússa,
eða brjóst með kraga, og er hann fallegur sem slíkur við hvaða tækifæri sem er.
Einn kjóll verður að fjórum — með smábreytingum
KV ÖLDPEYSA
Efni: 75 gr. af fíngerðu garni með gullþræði. — Prjón-
ar nr. 5. — 1.50 m af satínskábandi til þess að brydda
með hálsmál og handvegi. Fitjið upp 17 1. og prjónið
prufu með sléttu prjóni. Verði þvermál prufunnar 10 cm
má prjóna eítir uppskriftinni óbreyttri, annars verður að
fjölga eða fækka lykkjunum i hlutfalli við þann cm-
fjölda, sem prufan mælir.
Bakstykki: Fitjið upp 80 1. og prjónið sléttprjón. Aukið
út 1 1. báðum megin þegar stykkið mælist 4, 8 og 12 cm
Prj. áfr. þar til stk. mælist 17 cm, fellið þá af fyrir liand-
vegum báðum megin, 2 sinnum 2 1. og 1 1. Þegar slk.
mælist 30 cm og 32 cm er aukin út 1 1. báðum megin.
Prj. 2 cm áfram og fellið frá af fyrir öxlunum báðum
ínegin, með því að fella af 4 1. 2 sinnum og 5 1. einu
sinni. Um leið og fyrsta axlaaffelling er gerð, eru einnig
felldar af 28 miðlykkjurnar fyrir hálsmáli. Prjónið aðra
hliðina fyrst og fellið af hálsmálsmegin 8 1. og 3 1.
Framstykki: F'itjið upp 88 1. og prjónið sléttprjón. Auk-
ið út á hliðunum eins og bakstykkinu. Þegar stykkið mæl-
ist 15 cm er mælt á svo l'ramstykki peysunnar fái brjóst-
vídd. Prjónið þar til 8 1. eru eftir á prjóninum, snúið
þá við og prjónið þar til 8 1. eru eftir hinum megin, snú-
ið þá aftur við og prj. þar til 16 1. eru eftir á prjóninum,
snúið þá aftur við og prj. þar til 16 1. eru eftir hinum
megin, prj. þá þar til 24 1. eru eftir, snúið við og prj. þar
lil 24 1. eru einnig eftir hinum megin. Prjónið nú yfir alla
umferðina og áfram þar til liliðarsaumurinn mælist 17
cm. Fellið þá af fyrir handvegi báðum megin 4, 3, 2, 2 og
1 1. þegar stykkið mælist 27, 29, 31 cm er aukin út 1 1.
báðum megin. Þegar stykkið mælist 29% cm cru felldar
af 10 miðlykkjurnar fyrir hálsmáli og önnur hliðin prjón-
uð fyrst. Fellið af hálsmálsmegin 5, 4 og 3 1., 3 sinnum
2 1. og 2 sinnum 1 1. Þegar stk. mælist 32% cm er íellt af
fyrir öxlum 3 1. 3 sinnum og 4 1. einu sinni.
Framhald á bls. 51.
14
VIKAN 22. tbl.