Vikan - 30.05.1963, Qupperneq 42
LC/QBURIWN
VIKU
klúbburinn
Klúbbblað fyrir börn og unglinga. Ritstjóri: Jón Pálsson.
langor þig i Pololondsl
Ferð Gullivers til Putalands, er meðal
skemmtilegustu ævintýra, sem þið hafið
lesið, er það ekki rétt? Oft hafið þið
sjálfsagt óskað þess, að þetta furðuland
væri til, í raun og veru; og þið ættuð
þess kost, að komast þangað — eins og
Gulliver á sínum tíma.
En ef þú átt einhvern tíma eftir að
Parþegalest á leið til Putalands.
^2 — VIKAN 22. tbl.
Langferðabílar aka undir járnbrautarbrú í ná
grenni Madurodam.
koma til Hollands, þá getur þú, eins og
Guliver, gengið um í Putalandi. Þar er
hær, sem lieitir Madurodam ■— og allt
er þar 25 sinnum minna, en þú átt að
venjast. Ekki aðeins húsin í bænum,
bændabýlin í kring, hestarnir, kýrnar og
trén, —- allt er í þessari smækkuðu
mynd, sem vekur svo mikla athygli
ferðamanna, sem þangað streyma ár-
lega.
Strætisvagnar, sem ná þér í hné, aka
um bæinn og þú verður að standa á
báðum gangstéttum götunnar, meðan
þeir aka framhjá — milli fóta þinna.
Við aðaltorgið er stærsta kirkjan og þú
getur nærri þvi teygt höndina upp að
gullkúlunni, efst á turninum. Ef þú
leggst á hnén og gægist inn um glugga
á einhverju íbúðarhúsinu sérðu, að ekk-
ert vantar af þvi, sem þú átt að venjast
heima: Bollar, eins og finguébj argir,
standa á eldhúsborðinu, teppi eru á
gólfum, það eru meira að segja pinu-
litlar bækur í hillum og ef þú nærð í
ljósrofann, getur þú kveikt á litilli ljósa-
krónu, sem liangir í stofunni.
Já, þetta er furðulegur bær. En gakktu
varlega um hann, — engin risaskref, því
þá ferðu á mis við margt, sem gaman
er að skoða. Þarna er t. d. tónlistarliöll-
in og ef þú leggur eyrað að opnuin
gluggunum, getur þú lilustað á sígilda
tónlist snillinganna, en tónarnir eru auð-
vitað, — eins og annað i Madurodam,
25 sinnum veikari, en þú átt að venjast.
Aðeins, að þú ættir nú töfradrykk, sem
breytti þér í Tuma þumal, stundarkorn,
svo þú gætir gengið inn í húsin,
rennt þér niður stigahandriðin,
hvílt 'þig í litlu hægindastólunum
og drukkið úr bollunum, sem ekki
eru stærri en fingurbjargir.
Gleymdu ekki að ganga niður að
liöfninni. Þar er allt á ferð og
flugi, skip koma og fara og vöru-
lyftur eru í gangi allan liðlangan
daginn.
Bærinn Madurodam, er aðeins
átta ára gamall. í miðbænum er
gamli bæjarhlutinn og ef þig lang-
ar að vita hve húsin þar eru gömul,
þá verður þú að margfalda 8x25,
útkoman verður 200. Ssm sagt, ná-
kvæm eftirlíking af 200 ára göml-
um byggingarstíl í Hollandi. En
bærinn vex, stöðugt er verið að
byggja ný hús og mannvirki. Á
kvöldin er allt uppljómað og dauf-
ir ómar berast að eyrum þér, frá
veitingastöðum og kaffihúsum, en
ljósaauglýsingar á stærð við eld-
spýtnastolcka, skipta litum i sifellu.
Jú, þetta allt er draumi líkast, en
er þó gallharður veruleiki. Hjón i
Hollandi, létu reisa þennan bæ, til
minningar um son, sem þau misstu
Þær sitja frerast á hafnarbakkanum og
horfa á lystisnekkjuna leggja frá landi.
í síðustu heimsstyrjöld. Auðvitað
kostar það peninga, að skoða þenn-
an bæ, en tekjunum er lika vel var-
ið: Til að reka stórt og myndarlegt
lieilsuhæli í nágrenninu. — Já, bær-
inn Madurodam þenst út.