Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 20.08.1964, Qupperneq 29

Vikan - 20.08.1964, Qupperneq 29
VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI Aðalskrifstofa Reykjalundi, sími um Brúarland. Skrifstofa í Rvík, Bræðaborgarstíg 9, sími 22150 Ósjálfrátt skaut ég upp kryppu, til þess að bleyta mig ekki meira en nauðsynlegt var. Það flaug gegnum huga minn, hvað það gæti verið notalegt að leggjast þarna og hvíla sig reglulega vel, áður en lengra yrði haldið. Eg mundi svo vel, hvað það var hryssingslegt og kalt úti. En þessi þankagangur stóð ekki nema brot úr sekúndu, því ég reif mig strax upp úr læknum, og at- hugaði hve mikið ég hefði blotnað. Það var ekki sem verst. Á hand- leggjunum upp fyrir olnboga. Önn- ur uppbrotin skálmin hafði lent ofan í, og þar var ég blautur upp á mitt læri. Þegar ég náði hinum frammi við innra opið, þar sem loftið var hreint og tært og tók af manni alla mæði, voru þeir með áhyggjur af því, að einhver hefði orðið eftir inni. Ég harðneitaði því og kvaðst hafa ver- ið síðastur. Það var gott að vera viss í sinni sök, því ég vildi ógjarna hafa þurft að fara aftur inn eftir alveg strax. Hér skiptust leiðir. Þeir sem áttu fötin sín frammi við op, fóru áfram fram hellinn, en við hinir lögðum til uppgöngu um innra opið. Það var tiltölulega greið leið, þótt bjart væri, um mitt opið var ísveggur- inn sérstaklega fallegur. Við gátum okkur til, að jökullinn væri þarna um 40—50 m á þykkt. Svo rennd- um við okkur fótskriðu niður af jöklinum og hittum hina í mynn- inu. Hér var ekkert samflot um að ræða, svo við Hróar lögðum þegar af stað niður að tjaldi aftur. Á leið- inni ræddum við um hellinn. Við vissum ekki fyrir víst, hvaða loft var þar ráðandi, en það var ör- ugglega ekki súrefni. Líkast til brennisteinsgufa. Það eitt var víst, að það var óhollt. Ég fékk aftur sting gegnum brjóstholið hægra megin, þegar við klifruðum upp úr gilinu. Okkur taldist til, að við hefðum farið svo sem fimm hundruð metra inn eftir hellinum. Þegar hann fannst í fyrra, var farið á að gizka 300 metrum lengra. Og enginn kenndi lungnameins. Og þá sá eng- an veginn fyrir enda á hellinum. Hve langt nær hann? Hvaðan kem- ur heita áin? Þeirri spurningu er enn ósvarað. Kvöldið áður, í Herðubfeiðarlind- um, kom til tals, að hellirinn hefði ekki nafn. Þá ákváðum við að velja honum nafn í þessari ferð, þegar allir hefðu séð hann. En þegar mönnum er þungt um andardrátt er andleysinu boðið heim, og mér vit- anlega er hellirinn óskírður ennþá. Það var úrkomulaust, þegar við gengum aftur niður ! tjöld. Bleytan í fötunum þornaði ört, nema skórn- ir og Húsavíkurvettlingarnir. Þegar niður eftir kom, fórum við í þurrt, eftir því sem tök voru á, og ég hengdi skóna mína til þerris á speglastoðirnar á Land-Rovernum hans Hróars. Svo settumst við inn í bíl og röbbuðum um stund, en svo var mál að snúa sér að kvöld- matnum. Meðan súpan var að hitna, tók að slydda aftur. Rokið lamdi slydd- unni inn í tjalddúkinn og það grán- aði í allar misjöfnur. Súpan var meiri en ofan í okkur Vikumenn, og létum við félaganna njóta góðs af, eftir því sem „húsrúm" og magn leyfðu. Það var ekki fyrr en ég þurfti nauðsynlega að fara út úr tjald- inu, að mér varð Ijóst ,að skórnir voru enn til „þerris" í slyddunni, og víðs fjarri mér. Ég treysti mér ómögulega til að stikla eftir þeim á sokkaleistunum og bleyta mig þar með aftur í fæturna, svo ég kallaði í vörpulegan Aðaldæling, sem þarna var á vappi, — þar að auki bílfélagi okkar í alfari Hróars — Ivar Ketilsson frá Efra-Fjalli, og bað hann að vera nú svo vænan að skokka eftir skónum mínum. Hann brást vel við og var fljótur eftir skónum, snaraði þeim inn fyrir tjaldskörina og var þar með horf- inn. Mér brá heldur en ekki í brún, þegar ég fór að mausast við að setja á mig skóna. Þeir voru gler- frosnir! Já, hvað getur ekki skeð í 1000 metra hæð yfir sjó eða þar um bil, þótt komið sé fram að mánaðamótum júní— júlí? En að þessu sinni fór mér eins og þeim gömlu góðu Islendingum, sem kváðu sér til hita: Mér varð staka af munni! Mér svona datt hún í hug, eins og þeir segja hagyrðing- arnir. Ég varð steinhissa á þessu sjálfur, því það eru nú komin stíf fimm ár, síðan ég reyndi að hnoða saman vísu síðast, ef frá er tekin ein eða tvær vísur, sem ég böggl- aði saman til að meykja á sam- starfsmmann minn á síðastliðnum vetri, eftir að sá hafði gefið upp boltann með því að yrkja um mig grófa níðvísu. Ég býst við, að þessi skyndilega skáldanáttúra hafi flætt yfir mig þarna upp í Kverkfjöllum vegna andlegrar nálægðar við Þing- eyinga. Og vegna áhrifa frá Þing- eyingum læt ég vísuna flygja hér með: Þoldi ég bæði hristingshraun, hruflu á fingur, lungnaraun. En þegar ég fór í freðna skó, fannst mér loksins komið nóg. Nú var hann brostinn á með snjókomu. Melarnir voru gráir yfir að líta, og ekkert lát á rokinu. En Þingeyingum er ekki fisjað saman: Nú vildu þeir í fjallgöngu. Og það meira að segja stúlkurnar tvær, sem voru fulltrúar kvenkynsins í þessari ferð. Þær voru báðar úr Bárðar- dal, hinar mestu valkyrjur, og gáfu karlmönnum aldrei eftir, og fóru langt fram úr okkur pappírsbúk- unum að. sunnan. Við ruddumst hins vegar upp í þann Land-Roverinn, sem við vissum olíuríkastan, og kröfðumst þess að miðstöðin yrði kynnt. En Bárðdælingar og Hús- víkingar, sem ekki gengu á fjöll, VIKAN 34. tbl. — 29

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.