Vikan


Vikan - 06.01.1966, Blaðsíða 43

Vikan - 06.01.1966, Blaðsíða 43
Það stóð ekki ó svarinu. — Þær segia þið fó þeim aftur byssur og þaer fara burt. Á morgun þið hitta þær hinum megin Koto og fá góðan bardaga saman. — Nei, nei, nei! Það náði engri átt. Þær voru striðsfangar og — gott og vel, stríðsfangar voru stríðsfang- ar. Höfðu skialdmeyjarnar annars nokkrar aðrar óskir fram að færa? í þetta sinn ræddust skjaldmeyj- arnar við lengi og fjörlega áður en þær svöruðu. — Þær ekki vilja fara ( fangelsi. Þær segja þær þrælar nú. En þær ekki vilja vera ykkar þrælar. Þeim Ktast vel á mikla hvita hermenn. Þær berjast með ykkur. Þær ekki berjast við sína þjóð, en þær fara langt burt með ykkur. Þær gefa ykkur gjöf. Þær ganga með ykkur og bera byrðar ykkar á höfðum. Þær berjast með ykkur. Þær elda fyrir ykkur. Þær sofa hjá ykkur, en þær ekki þvo fyrir ykkur. Þið fá aðra þræla til að gera það. Aftur tók liðsforingi skjaldmeyj- anna til máls og talaði hratt. Burð- armaðurinn hristi höfuðið efabland- inn en þýddi engu að sfður: — Þær vilja einn mikill kvenher- maður til einn mikill karlhermað- ur. Þær ná í aðra mikla kvenher- menn fyrir aðra mikla karlhermenn. Þær og þið verða eiginmenn og konur. Nú þær vilja velja eigin- menn. Nú töluðu allir hermennirnir hver upp í annan, og sumar skjaldmeyj- anna gerðu sig líklegar til að risa á fætur. Að lokum tók undirforing- inn, sem kallað hafði félaga s(na heiðarlega menn, rögg ! sig og skipaði þeim að þegja. Hann vildi að ákveðin atriði kæmu skýrt fram, og enn einu sinni ávarpaði ensku- mælandi hermaðurinn burðarkarl- inn. — Segðu þessu kvenfólki að við höfum ekkert á móti því, en þeg- ar okkur vanti konur, þá veljum við þær sjálfir. Við látum þær ekki velja okkur. Og við ( Útlendinga- hersveitinni getum ekki kvænzt ( stríði. Og segðu þeim að við kunn- um vel að meta friðsamar konur. Stríð er á allan máta vondslegt fyrirbæri. Og sérstaklega er það slæmt fyrir konur. Segðu þeim að elska friðinn og að við munum annast þær og sjá um að þær finni ekki upp á neinni vitleysu. Hversu vel burðarmaðurinn gat túlkað viðhorf hermannanna fyrir skjaldmeyjunum, vissu þeir auðvit- að ekki. Eitt var v(st, að engin kvennanna gerði tilraun til stroks. Meðan herinn hvíldist ( nágrenni Koto og beið liðsauka frá strönd- inni, gerðu liðsmenn Útlendingaher- sveitarinnar sér Ijóst, að það var ( rauninni algerlega óþörf fyrirhöfn af þeim að standa vörð um fang- ana. Þeir gáfu stúlkunum að borða og gerðu að sárum þeirra, og þeg- ar haldið var áfram áleiðis til Abómey, hjálpuðu konurnar þeim að bera farangurinn. Dag einn s(ðla ( október báðust konurnar leyfis að mega baða sig ( tjörn ( skóginum. Þær afklædd- ust hverri spjör og busluðu svo um hríð ( grunnu vatninu. Þær kölluðu hlæjandi til hermannanna og bentu þeim að koma út í. Sumir her- mannanna gengu til og horfðu á þær, en aðrir sneru sér undan. Þeir sem ekki sneru sér undan voru það- an af í engum vafa um, að þær voru meðal elskulegustu kvenna á jarðríki. Á fleiri vegu breytti það við- horfum hermannanna að sjá skjald- meyjarnar ( baði. Þeir fóru nú til dæmis að halda þv( fram, að Da- hómarnir væru ( rauninni ekkert yf- irmáta grimmir, þrátt fyrir allar sögurnar um villimannlegt hátterni kóngsins þeirra; þegar allt kom til alls, þá pynduðu þeir ekki fórnar- dýr sín líkt og Rómverjar, sem rang- lega voru taldir til siðaðra þjóða, höfðu gert og sömuleiðis þeir hjá Rannsóknarréttinum, sem þó höfðu kallazt kristnir. Sumir þessara manna, sem mest höfðu gaumgæft skjaldmeyjarnar, fengu auk heldur allskonar furðulegar flugur f höf- uðin. Til dæmis fóru þeir nú að halda því fram, að svartur Afr(ku- maður þyrfti ekki endalega að standa hvítum manni frá Evrópu að baki. Hann hefði einfaldlega að- lagast lofslagi og öðrum aðstæð- um, sem fyrir hendi voru ( landi hans. Ef hann gerði eitthvað- heimskulega, þá var það af því að trúarbrögð hans voru heimskuleg. [ öllum grundvallaratriðum hagaði hann sér spaklega. Til dæmis um það mætti taka, að svertingjar hefðu ekki látið hjá l(ða að taka hjólið ( notkun vegna þess, að þeir væru heimskari en hvftir menn; á- stæðan væri einfaldlega sú, að ( frumskógunum og runnunum hjá þeim var engin leið að koma því við. Þeir liðsmenn Útlendingahersveit- arinnar, sem sögðu slikt og því- líkt, var ekkert áfram um að yfir- gefa Svörtu-Afríku. Þann sjötta nóvember tóku Frakkar Abómey. Behasín konungur hafði þá kveikt í borginni og flú- ið. En höllin hans stóð enn uppi. Hún var ólíkt tilkomuminni en sig- urvegararnir höfðu haldið, aðeins nokkrir kofar úr þurrkaðri leðju og stráum, sumir stórir, aðrir smáir og með þyrnigerði umhverfis. Hásæt- issalurinn var að vísu frá gólfi til lofts prýddur hauskúpum og nokkr- ar fleiri, sem hirðin hafði notað til að drekka úr, fundust úti í horni. En konungur sjálfur, konur hans og hjákonur, ráðherrar, prestar og stríðsmenn voru á bak og burt, skiljandi eftir sig engan stórfeng- leika. Tveimur dögum sfðar handsöm- uðu liðsmenn úr Útlendingahersveit- inni Behasín ( þorpi nokkru norður frá. Hann var álfka tilkomulaus álitum og höllin hans; stuttur og feitur og að þv( er virtist algerlega kærulaus um örlög sín. Hann var búinn lendaskýlu einni fata og tott- aði stóra p(pu, og þannig gekk hann með fangavörðum sínum til Abómey. Frakkarnir fóru vel með hann, svo sem þeir eru vanir að gera við sigrað hátignarfólk. Þeir ákváðu að hækka eftirlaun þau, sem þeir áður höfðu boðið honum og fluttu hann ásamt þremur eig- inkvenna hans ( útlegð. fyrst til Martinik og slðar til Alsír, og þar dó Behasfn fjórtán árum síðar úr ofáti. Hinn upprunalegi átta hundruð manna flokkur úr Útlendingaher- sveitinni hafði verið styrktur með tvö hundruð og fimmtíu mönnum til viðbótar, áður en hinni stuttu herferð lauk. Af þessum eitt þús- und og fimmtíu mönnum komust aðeins um fjögur hundruð og fimm- tíu aftur lifandi til aðalbækistöðva sinna ( Sidi-bel-Abbés. Hitasótt varð meirihluta hinna að bana. Sem þeir eftirlifandi sigldu norð- ur, hugleiddu þeir hvað orðið hefði af skjaldmeyjunum. Einu sinni höfðu þær verið alltof margar. Nú voru þær ekki lengur til sem slíkar. Þeg- ar Dodds hershöfðingi hafði gefið skipun um að láta alla fanga lausa, höfðu hinar föngnu skjaldmeyjar haft sig á brott með tregðu. En þær fóru eins og góðum hermönnum bar þegar piltarnir úr Útlendinga- hersveitinni skipuðu þeim að fara — sumir trúlega með tregðu. Aldrei framar heyrðist skjald- meyjanna getið ( sambandi við stríð, jafrtvel ekki viðvíkjandi veið- hafa sumar þeirra kannski með tíð um. En þar eð þær voru konur, og tíma orðið góðar húsfreyjur. ★. Þar sem himininn einn setur takmörk Framhald af bls. 11. Einn af betri privat klúbbum Houston's heitir „The Orbit Room", með stórum stöfum fyrir utan „The Orbit Room" stendur m.a. „Hulda and her guitar". Hulda sú, sem þar er um talað, er frú Hulda Emilsdóttir, eða Mrs. Petursson eins og hún má heita hér. Margir heima á íslandi kann- ast þegar við Huldu, þar sem hún söng á Þórskaffi og í útvarpið heima, áður en þau hjónin flutt- ust hingað til Texas árið 1962. Houstonbúar fullyrða að Leifur heppni hafi verið Norðmaður, og það er sama hvernig ég þræti, og segi að Leifur hafi ekki verið meiri Norðmaður, en Washington hafi verið Englendingur, eða Kennedy Iri, þeir trúa mér ekki. Þetta ergir mig mjög, vegna þess að Leifur gamli er eini íslending- urinn, sem Houstonbúar almennt hafa heyrt um, þ.e. þeir sem hafa þá nokkurn tíma heyrt um ísland. Margi fólk skoðar mig með tor- tryggum augum, þegar það heyr- ir að ég kem frá (slandi, og finnst ég vera furðulega útlítandi eski- mói, svo ég svara eskimóaspurn- ingunum með hinni löngu sögu um Harald Hárfagra og Víkingana, en það bætir lítið úr skák hvað tor- tryggnina í minn garð snertir, þvf ég er dökkhærð, sem þeim finnst alls ekki passa. Ég varð því himinlifandi þegar ég kynntist Huldu, því engum dett- ur í hug að rengja mig, þegar ég HJOLBARÐAR SOVÉTRÍK3UNUM MARS TRADING CO. H.F. KLAPPARSTIG 20 SÍMI 17373 VIKAN 1. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.