Vikan


Vikan - 06.01.1966, Side 44

Vikan - 06.01.1966, Side 44
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF STUTTUM OG SÍÐUM SAMKVÆMISKJÓLUM Laugavegi 59. — Sími 18646. segi að hún sé íslendingur. Hún er Ijóshærð og bláeygð og bráðmynd- arlegur kvenmaður, jafnvel á vík- ingamælikvarða, og þó ég sé alls ekki búin að gefa þá hugmynd upp að Island eigi að fá að njóta þeirr- ar góðu landkynningar sem Leifur heppni er, þá er ég fegin að Hulda og hennar fjölskylda eru hér, því þau eru ágætis landkynning á sína eigin vísu. Hulda var ráðin til að syngja í „The Orbit Room'' í tvær vikur, en nú eru liðnir meira en tveir mánuðir síðan hún byrjaði þar, sem mun gefa einhverja hugmynd um vinsældir hennar. Hún kemur þar fram þrisvar á kvöldi, öll kvöld nema sunnudagskvöld, og syngur þrjú lög í einu, en slíkt lætur ekki Hulda sér í augum vaxa, enda vantar ekki fjölbreytnina í henn- ar söng, þar sem hún syngur á ensku, dönsku, þýzku og íslenzku, og annast hún sjálf sinn undirleik á gítarinn. „Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn", hljómar unaðslega í eyrum eins og Hulda fer með það, enda er röddin góð og vel til með- ferðar söngvanna vandað. Dægurlagasöngur er ekki það eina svið tónlistar sem Hulda hef- ur áhuga á, því hún er meðlimur í kór óperu Houston. Þar er verið að æfa, meðal annars, fyrir flutn- ing á Hollendingnum fljúgandi, sem hefja á í janúar. Svo syngur Hulda í kirkjukór og er að læra að spila á píanó. Dóttir hennar, Birna, er að læra á fiðlu, sonurinn, Ingvar, á klarinet. J janúar hefur svo Hulda tónlistarnám á þeim stærsta af 6 háskólum Houston's, University of Houston, með það fyrir augum að gerast tónlistar- og söngkennari í barnaskóla. Þau hjónin Hulda Emilsdóttir og Guðjón Pétursson búa í leiguíbúða- byggingu sem heitir Voss Village, og er mjög skemmtileg tveggja hæða bygging, þannig samansett að byggingin umlykur torg, sem á stendur eldgömul klukka á turni. Sundlaug, saunabað og klúbbhús er þar líka, leigjendum til þrifa og skemmtunar. í byggingunni eru f- búðir allt frá eins svefnherbergis upp í fjögurra svefnherbergja tveggja hæða „studio" íbúðir. Að sjálfsögðu hafa allar fbúðirnar öll nýjustu þægindi, svo sem fullkomna kælingu, sem kölluð er „Central Airconditioning" og er þannig fyr- ir komið að vélarnar, sem fram- leiða kalda loftið fyrir allar fbúð- irnar, eru úti á þar til gerðum stað, þannig að íbúar íbúðanna þurfa ekki annað að gera en að stilla hitamæli einn lítinn á vegg hjá sér á það hitastig sem æski- legt þyktir, og streymir þá kalt loft inn um þar til gerða ventla í öllum herbergjum. Á vetrum fæst svo heitt loft inn á sama hátt. Eld- húsin eru svo útbúin öllum nauð- synlegum þægindum og þar á með- al uppþvottavél og hakkavél í vask- inum (garbage disposal) til að hakka rusl, svo auðvelt sé að losna við matarleifar og annað. íbúð þeirra Huldu og Guðjóns hefur tvö svefnherbergi, tvö bað- herbergi, gang, forstofu, eldhús og stóra bjarta stofu. Einn veggur stof- unnar er úr gleri, og á honum eru gler rennihurðir, sem liggja út á stórar svalir. Á svölunum hefur Hulda komið fyrir stórum kassa, sem í vaxa blóm, þar á meðal rósarunni og benti hún mér hreyk- in á 6 knúppa, að þvf komna að springa út, í desember! Eg var í heimsókn hjá þeim á laugardagseftirmiðdag, sem er ann- ar af tveim dögum vikunnar, sem hægt er að ná í þau hjónin sam- tímis, þar sem Guðjón vinnur á daginn, en Hulda á kvöldin og börnin, Ingvar 8 ára og Birna 12 ára, eru heima frá öllum þeim skólum sem þau stunda, þvf fyrir utan áðurnefndan fiðluleik, sem Birna er að læra, er hún einnig að læra balletdans í dansskóla. Guðjón og Ingvar voru þó frekar uppteknir, því þeir voru að þvo bíla fjölskyldunnar, alla þrjá. Svo stóð á að Guðjón var nýbúinn að kaupa nýjan Ford, en ekki búinn að selja gamla Chevrolettinn enn- þá, og svo eiga þau Volkswagen sem Hulda notar mest. Þeir gáfu sér samt tíma til að koma inn f eftirmiðdagskaffi með rjómatertu og öllu tilheyrandi á íslenzka vísu. — Hvernig kunnið þið við ykkur hér í Houston? Hulda: — Alveg prýðilega, nema hvað ég sakna að hafa engin fjöll í kringum mig. Guðjón: — Ágætlega, framtíðar- möguleikar hér í Houston eru al- veg ótrúlegir, það er svo mikið verið að gera hér. Samt er ég orð- inn leiður á hitunum. Það er eins og maður sé að koma úr gufubaði, þegar maður er búinn að vera úti á sumrin, rakinn og hitinn er svo mikill. Ég vildi gjarnan búa í Norðurríkjunum af þeirri ástæðu. — Hvernig kunnið þið við að búa í svona íbúðabyggingu? Hulda: — Alveg Ijómandi. Það sem ég kann einna bezt við, er að við þurfum ekki að vesinast í að borga neina reikninga, svo sem rafmagns, hita o.s.frv., því við borg- um bara fasta leigu mánaðarlega og svo sér húseigandinn um hitt, nema símagjaldið. Við erum samt að svipast um eftir húsi, þvf við þurfum meira pláss, a.m.k. 3 svefn- herbergi. Ég er alveg ákveðin, að ef við kaupum hús, eiga öll þau þægindi, sem við höfum hér, að vera f þvf. Annars er nóg úrval af húsum hér, en við verðum að velja gott nágrenni með góðum skólum nálægt. Til dæmis er svo komið hér í þessari íbúðabyggingu, að það eru engar gangstéttir meðfram göt- unum hér fyrir utan og umferðin er mikil, svo þó skólinn sé ekki mjög langt f burtu, þá þarf ég að keyra með börnin f skóla á hverj- um morgni og sækja þau á daginn, og eins hvert annað sem þau fara. Borgin skaffar skóla-strætisvagna, en bara fyrir börn sem búa meira en 2 mílur frá skólanum. Vegna ^ VIKAN 1. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.