Vikan - 07.11.1968, Blaðsíða 14
t;esa
I,
QAGLEGTf HEILSUFAR
«1
I
VILJI OG
SJÁLFSTRAUST
ELDRA FÖLKS
Við fáum oft bréf frá
fólki, sem kvartar undan
einmanaleika. Það furðu-
lega er að oftast er þetta
ungt fólk; en nú fyrir
skömmu fengum við bréf
frá eldri konu, sem segist
vera mjög einmana og allt-
af lasin, og kvartar undan
því hve læknar séu tómlát-
ir, þegar um eldra fólk er
að ræða.
Við ætlum okkur ekki
þá dul að ráða bót á slík-
um vanda, en nýlega dutt-
um við niður á frásögn af
læknafundi, þar sem ame-
rískur iæknir stóð upp og
sagði:
— Nútímafólk virðist
vera heilaþvegið í þá átt
að alls konar hrörleiki
komi með aldrinum, og sé
eingöngu aldrinum að
kenna, og að sumum finn-
ist lífið ekki þess vert að
lifa því eftir 50 ára aldur.
En það er enginn sjúkdóm-
ur sem orsakast af ellinni
einni saman. Titrandi
hendur og stirður gangur
stafa af hreyfingaleysi og
vissum aðstæðum, ekki
eingöngu af elli, og minn-
isleysi orsakast oftast af
sljóleika og andlegri leti,
athafnaleysi og framtaks-
leysi. Lausn þessara
vandamála er greinilega
sú, að maður má aldrei
hætta að hafa áhuga á
fólkinu í kringum sig og
heiminum, sem við búum
í, að maður má aldrei
hætta að hafa löngun til að
fræðast, og að hafa alltaf
áhuga á því að viðhalda
líkamskröftum; — sem
sagt að spyrna við allri
stöðnun....
Svo mörg voru þau orð,
og það getur verið að þetta
sé að taka nokkuð mikið
upp í sig, og að málið sé
ekki svona einfalt.
En flestir þekkja eitt eða
fleiri gamalmenni, og ef
maður hugsar sig vel um
þá er, sem betur fer, margt
gamalt fólk, sem er ánægt
með tilveruna og sér ekki
út úr því sem það hefur
að gera, þótt það sé hætt
daglegum störfum utan
heimilis, segist jafnvel
ekki skilja hvernig það
hefur haft tíma til að
vinna fyrir sér.
Aðrir leggjast í leti og
verða því fyrr aldursljó-
leikanum að bráð. Það er
auðvitað mismunandi erf-
itt að eldast vel, en allir
verða að leggja eitthvað á
sig, til að gera ellina létt-
ari og skapa sér jákvæð
lífsviðhorf. Þetta er því
nauðsynlegra sem meðal-
aldur hækkar stöðugt.
Það er mjög erfitt fyrir
þá, sem alla ævi hafa unn-
ið við andleg störf, að fá
ekkert að gera við sitt
hæfi, þegar hefðbundnu
aldursmarki er náð (70
ára). Ef menn eru að öllu
leyti hressir, er þetta mjög
erfitt. Það er t. d. léttara
fyrir húsmæður og hand-
verksmenn, sem oftast geta
fundið sér eitthvað til og
alls staðar eru velkomin,
þar sem þörf er fyrir lag-
tækar hendur.
En þetta getur farið vel
hjá öllum, sem hafa und-
irbúið ellina í tæka tíð,
þeim sem alla ævi hafa
haft mörg áhugamál og
augun opin fyrir gangi lífs-
ins, og þannig skapað sér
möguleika til að njóta þess
þegar nægur tími, — já,
kannski alltof mikill tími,
er fyrir hendi.
Það er ekki þar með
sagt að fólk eigi markvisst
að eyða miklum hluta ævi
sinnar í það að undirbúa
ellina; — hvert æviskeið
hefur sín tækifæri, óvænta
gleði og möguleika til að
sinna hugðarefnum. Það er
það sem gerir hverja
manneskju að einstaklingi.
Síðustu árin þurfa að
vera góð. Það er jafnlang-
ur tími milli þrítugs og
fimmtugs og sjötugs og ní-
ræðs, og því skildu þau
síðarnefndu ekki vera góð
líka? Það er að segja ef
gott heilsufar er fyrir
hendi. Það er, því miður,
margt eldra fólk, sem
kennir aldrinum eða ell-
inni um allan lasleika, eða
leitar læknis of seint. Þess
vegna er það nauðsynlegt
að sinna því ef eitthvað er
að, það er þá kannski hægt
að fyrirbyggja langvarandi
þrautir....
Framhald á bls. 26,
tesamoll þéttir
dyr og glugga.
14 VITvAN—AFMÆLTSBLAÐ
Hið teygjanlega tesamoll fellur í
samskeyti og rifur milli fals og karma,
þar eð tesamoll er gert úr svampkenndu
efni, sem útilokar bæði súg og vætu.
tesamoll deyfir hurðaskelli og þéttir dyrnar svo notalegur
ylur helzt í herberginu.
HINAR
VIÐURKENNDU
ENGLISH ELECTRIC
SJÁLFVIRKU ÞVOTTAVÉLAR 2 GERÐIR
GERÐ 474 GERÐ 484
• Heitt cða kalt vatn til áfyllingar.
- Innbyggður hjólabúnaður.
• 8 þvottastillingar — skolun — vindun
• Afköst: 4,5 kg.
• I árs ábyrgð
• Varahluta- og
viðgerðaþjónusta.
(iMP&Sl
Laugavegi 178 Sími 38000
ENGLISH ELECTRIC
þurrkarann má tengja
viö þvottavélina (474)