Vikan


Vikan - 07.11.1968, Blaðsíða 46

Vikan - 07.11.1968, Blaðsíða 46
Sparið fé og fyrirhöfn . . og bjóðið heimilisfólkinu samt betri mat! DJÚPFRYSTING er bezta og fljótlegasta geymsluaðferðin, og þér getið djúpfryst hvað sem er: kjöt, fisk, fugla, grænmeti, ber, mjólkurafurðir, brauð, kökur, tilbúna rétti o.s.frv. — og gæðin haldast óskert mánuðum saman. HUGSIÐ YÐUR KOSTINA: Þér getið aflað matvælanna, þegar þau eru fersk og góð og verðið lægst. Þér getið búið í hag- inn með því að geyma bökuð brauð og kökur eða tilbúna rétti — og allt er við hendina, þegar til á að taka, ef þér eigið frystikistu eða -skáp. Takið því FERSKA ákvörðun: Fáið yður frystikistu eða frysti- skáp — og látið KALDA skynsemina ráða: V e I j i ð . . . . ATLÁS vegna gæðanna vegna útlitsins vegna verðsins 3 3 3 SAMBYGGÐRA KÆU- OG FRYSTISKÁPA STÆRÐIR FRYSTIKISTA STÆRÐIR FRYSTISKÁPA STÆRÐIR NYJAR GERÐIR * N/, þynnri en betri einangrun, sem veitir stóraukið geymslurými og meiri styrk. Sérstakt hraðfrystihólf og hraðfrystlsti11ing. Margir aðrir einkennandi ATLAS kostir. * BETRA V E R Ð I SÍMl 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVÍK. Gamall harmur greip mig, svo l að mér lá við gráti, harmur, án 1 ljósrar orsakar. Ég barðist af al- efli við að halda tárunum innan < sinna vébanda, en þegar það < tókst ekki, þá missti ég einnig ; vald á tungu minni, og ég hvæsti, l stjórnlaus af blygðun og ónátt- l úrulegri reiði: l — Þú skalt ekki halda, að ég sé að syrgja þig. Ég hefi aldrei i séð eftir þér. Þú mættir fara alla l leið til helvítis fyrir mér. Kann- i ski sagði ég ekki nákvæmlega þetta, en ég sagði eitthvað ljótt og reyndi að skýla viðkvæmni minni og sorg bak við það. Af nærgætni við mig leit hún aldrei á mig meðan ég var að jafna mig. 4(5 VIKAN—ÁFMÆLISBLAÐ Loks hvíslaði hún, eins og upp úr órólegum svefni: — Vertu ekki vondur við mig, Gústaf. Ég kom til þín, af því að ég á engan að. Skugginn hennar á veggnum hallaðist áfram og iíktist gamalli konu, sem rýnir blindum augum inn í eilífðina bak við dauðann. Úti var skollið á haglél, og gegnum dyn þess á glugganum heyrðist klukkan frammi í borð- salnum slá. — Hún sló tólf, sagði Eyja og reis á fætur. — Ertu að fara? spurði ég. — Ef þú vilt, svaraði hún. — Ég vil ekki, að þú farir, sagði ég og slökkti ljósið. Undir morguninn, þá lá hún enn ósnert við hlið mína og svaf. Tunglsbirtan, sem síaðist gegnum grisjulegt gluggatjaldið, varpaði gulum blæ á brjóst hennar og andlit. Hún hvíldi hreyfingar- laus og minnti á líkneskju úr vaxi. — Friðjón, hugsaði ég. — Það er hann, en ekki ég, sem þú leitaðir eftir í gærkvöldi, eða varstu á flótta frá honum? Þegar hún opnaði augun, starði hún fyrst á mig í spenntri eftir- væntingu, og augu hennar lýstu í hálfrökkrinu. Henni var bersýni- lega ekki ljóst, hvar hún var. Hvað ég hataði hana og þennan ljóma, sem annar maður hafði tendrað fyrir löngu. Láttu þér ekki missýnast, þetta er Gústaf Óskarsson, sagði ég biturlega. Bjarminn slokknaði í svip hennar, hann varð grár eins og tjörn undir hrönnuðum himni. — Gústaf, Gústaf, ég vissi ekki að þú varst svona góður, and- varpaði hún vonsvikin og gróf andlitið í koddann til þess að leyna því, sem hún fann, að stóð þar letrað. Hún hélt svo áfram í sömu stellingum: —- Gústaf, taktu mig, ef þú vilt, ég vissi ekki, að þú værir svona góður. —- Ég er að minnsta kosti of góður til að vera notaður sem plástur á marin fingraför Frið- jóns Dalamanns, slöngvaði ég framan í hana. Hún byrjaði að gráta, hljótt og hljóðlega, án þess þó að sleppa tökum á hálmstrá- inu sínu, hinni fjarstæðu von um endurreisn hamingjunnar: Gústaf, við g'ætum orðið hvort öðru góð, og hjálpað hvort öðru. — Of seint, of seint. Tveim árum of seint, greip ég fram í fyrir henni. Við skulum gleyma því, sem liðið er. Við erum svo ung og getum byrjað lífið að nýju, hélt hún áfram, með barnsleg- um þráa, gegnum grátinn. —- Kjaftæði. Ég vissi, að hún laug, og ég vissi líka að hún trúði ekki sjálf á það, sem hún sagði. Hún var aðeins á örvænt- ingarfullum flótta, undan sinni eigin tortímingu. Sömu örlögin biðu okkar beggja, munurinn var' einungis sá, aS ég flýði ekki, ég hélt til móts við það, sem ég vissi, að var óumflýjanlegt. — Eyja, sagði ég. — Þegar þú komst hingað í vetur, þá flögraði gegnum meðvitund mína reikul minning um sæludraum, sem mig dreymdi endur fyrir löngu, og rétt í svip greip mig sú hugsun, að enn gæti hann átt eftir að rætast. Nú veit ég annað og héð- an af munu slíkar hillingar ekki blekkja mig eða vekja mér bráð- feigar vonir. Það sama lærir þú, áður en lýkur. Við gætum að vísu bundizt heitum, en aldrei náð saman, aldrei til dauðans. Þú yrðir eins og ský á himnum, en ég eins og jörðin. Skugginn þinn yrði hjá mér, en ekki þú sjálf. — Ég þagnaði, og það varð löng þögn. Senn hlaut fólkið í húsinu að fara að vakna. Loks leit hún upp, og tár hennar runnu í lýsandi straumum niður eftir vaxgulum vöngunum. Eigum við þá aldrei að hitt- ast meir? spurði hún eins og úti á þekju, og ég fann, mér til ang- urs, að henni var svo hjartanlega sama um svar mitt, hugur hennar var allt annars staðar en hjá mér. — Nei, svaraði ég hranalega, en það gerði ekkert til, hún veitti því sjálfsagt ekki athygli. Litlu seinna klæddi hún sig í svarta pilsið sitt og grænu peysuna, og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.