Vikan - 07.11.1968, Síða 26
Nííudi Iri E
o
OUBLIN APPLE BILUARD
SMALLBILLIARD BULLDOQ
Reykurinn fer ca. 22,5 sm. í
gegnum kælikerfi RONSON
pípunnar og kemur kældur
og þurr út.
Þaö eru fleiri en ein pípa í sömu pípunni, 10 mismun-
andi kóngar og tvenns konar munnstykki fyrirliggjandi.
Það er hægt að velja á milli.
EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. HVERFISGÖTU 89, REYKJAVÍK.
Framhald af bls. 15
í því vaknaði ég.
Vinsamlegast ráðið þennan
draum fyrir mig sem fyrst. É’g
er mjög forvitinn að vita, hvern-
ig þið ráðið hann.
H. G.
Við erum hræddir um, að
þessi draumur boði ekki neitt
gott. Hann er líklega fyrir ósam-
lyndi innan fjölskyldunnar og
orsök þess er einhvers konar tál-
blekking. Að vísu segja sumir,
að vatn í skál boði gæfu og vel-
gengni, en það á varla við í
þessu tilfelli. Hvernig sem mað-
ur veltir þessum draumi fyrir
sér, verður niðurstaðan alltaf sú
sama: Þú verður blekktur illi-
lega og líklega af einhverjum
innan fjölskyldunnar. Það er
einkennilegt, að hlutur látinnar
móður þinnar skuli koma þarna
við sögu. Þann þátt draumsins
getum við alls ekki skýrt.
RAUÐIR OG BLÁIR
STEINAR
Kæra Vika!
Mig dreymdi, að ég gekk á
vegi, sem lá upp brekku. Með
mér var ungur maður, sem ég
þekki vel. í miðri brekkunni
stönzum við, og ég sezt á stól
sem er þarna á miðjum vegin-
um. Samferðamaður minn stend-
ur við hægri hlið mína. Þá ber
þarna að annan ungan mann,
sem ég þekki lítið. Hann stanz-
ar fyrir framan mig og lítur á
okkur til skiptis, dapur í bragði.
Svo leggur hann gullhring með
rauðum steini í kjöltu mína og
nælu með bláum steinum. Hann
er sáróánægður á svipinn, en þó
skárri í viðmóti við mig en hinn
unga manninn. Síðan gengur
hann burt.
Mig langar að vita einhverja
ráðningu á þessum draumi.
Með fyrirfram þakklæti.
Ástrós.
Draumurinn en fyrir breyt-
ingum í einkamálum þínum. —
Gullhringur táknar giftingu og
litirnir, sem koma fram, eru
báðir hagstæðir: Rautt táknar
ást og blátt hamingju. Við ráð-
um því drauminn á þann veg, að
nýr maður komi til sögunnar í
ástamálum þínum.
DAGLEGTB HEIISIIFAR
Framhald af bls. 14
Með aldrinum þarfnast maður-
inn sjálfstrausts og vilja í ríkum
mæli. Ef fólk segir að það geti
ekki þetta eða hitt, vegna þess
að það sé of gamalt. þá er það
of gamalt og getur ekki þetta og
hitt.
Það færi betur að margir færu
að dæmi konunnar, sem sagðist
vera svo forvitin og önnum kaf-
ir. að hún mætti ekki vera að
því að verða miðaldra fyrr en
eftir sextugt.. . .
☆
26 VIKAN—AFMÆLISBLAÐ