Vikan


Vikan - 07.11.1968, Qupperneq 32

Vikan - 07.11.1968, Qupperneq 32
 L Milljónamæringurinn fór heim, himinlifandi af ánægju. Hann vissi reyndar, að hann mundi ekki græða á hljóm- leikunum. En honum var alveg sama um það. Hann hafði lofað íbúum Tíansas City Bítlunum og staðið við loforð sitt. Koddaverin, sem Bítlarnir sváfn á í gistihúsi í Kansas City voru síðar seld tveimur kaupsýslumönnum frá Chicago fyrir 375 pund. Þeir bútuðu þau niður í 160. 000 smápjötlur og seldu þær fyrir einn dollara stvkkið! Stærsti atburður þessarar Ameríkuferðar gerðist 23. ágúst. Þá héldu Bítlarnir útihljómleika á Shea Stadium í New York. 55 þúsund manns voru viðstaddir og greiddur aðgangseyrir nam 304.000 dollurum. Annað eins hafði aldrei gerzt í heimi skemmtiiðnaðarins. Þetta var heimsmet, og því hefur enn ekki verið hnekkt. Af þessum 304.000 dollurum fengu Bítlarnir 160.000 dollara. Leigan fyrir húsnæðið var 30.000 dollarar. 1300 lögregluþjónar þurftu að halda uppi lögum og reglu á staðnum og kaupið til þeirra var 14.000 dollarar. Þeg- ar annar kostnaður hafði verið greiddur, svo sem- trygg- ingar, auglýsingar og fleira, voru eftir 7000 dollarar, sem Sid Bernstein fékk í hreinan ágóða, en hann stóð fyrir hljómleikunum. En hvernig leið Bítlunum meðan á öllum þessum ósköpum stóð? Eimnanaleiki og tómleikakennd settist að í brjóstum þeirra. Þeir fundu til smæðar sinnar gagn- vart þessu risavaxna bákni, sem sá um að flytja þá frá einum stað til annars og láta þá spila og syngja. Þeim fannst þeir vera staddir á eyðieyju, útilokaðir frá öllu raunverulegu lífi. Þeir voru fluttir með leynd og undir sterkri lögreglu- vernd til samkomuhúsanna, þar sein þeir áttu að spila. Að hliómlcikum loknum urðu þeir að bíða i búnings- herbergjum, þar til öskrunum linnti fyrir utan, og vog- andi var að flytja þá aftur undir lögregluvernd, eins og fanga, til hótelherbergis þeirra. Þar urðu þeir að hírast, innilokaðir, þar til þeir voru aftur sóttir og flutt- ir á nýjan stað. Þeir gátu ekki farið út á götu og skoð- að sig um í framandi borg. Þcir gátu ekki farið í göngu- ferð, ef þá langaði til að fá sér ferskt loft í lungun. Þeir gátu aldrei setið á opinberum veitingastað. Nánustu að- stoðarmenn þeirra, Neil og Mal, færðu þeim mat og drykk. Af afbrýðisemi og ótta við að vera skyldir eftir einir og án nauðsynhwrar verndar, bönnuðu Bítlarnir Neil og Mal að yfirgefa hótelherbergi þeirra, nema brýna nauðsyn bæri til. Þeir hírðust í hótelherbergjunum, reyktu, spiluðu á spil og léku á gítarana sína; reyndu með einhverjum ráðum að drepa tímann. Hvort þeir þénuðu 1000, 10.000 eða 100.000 pund á einu kvöldi skipti ekki nokkru máli. Það virtist vera með öllu til- gangslaust að vera orðinn ríkur, voldugur og frægur. Þeir voru fastir í gildru. Næstu tvö árin, 1965 og 1966, einkenndist líf Bítl- anna af ferðalögum. Þeir fóru í þrjár langar hljómleika- ferðir á ári; eina innan Bretlands, eina til Ameríku og þá þriðju til einhverra annarra landa. Þeir léku árlega inn á þrjár tveggjalaga-plötur og eina tólflaga-plötu. Það var einnig takmark þeirra að framleiða eina kvik- mynd á ári, en eftir aðra kvikmyndina, „Help“ 1965, gerðu þeir hlé á þeirri starfsemi. Að loknum þessum tveimur árum, varð algjör breyting á lífi og starfi Bítl- anna. Þeir hættu hljómloikaferðum og hættu að koma fram opinberlega. Þeir hafa ekki gert það síðan. Það var áhættusöm ákvörðun, sem þeir tóku þegar þeir ákváðu að hætta að koma opinberlega fram. Ástæð- an var fyrst og fremst sú, að þeir voru orðnir dauð- þreyttir og leiðir á þessum eilífu ferðalögum og stöðuga hamagangi. Þeir voru einmana og þeirn leið illa. Þeir léku sömu lögin á hverjum hljómleikunum á fætur öðr- um. Áheyrendurnir voru alltaf nýir, svo að það kom ekki að sök. Oskrin og lætin voru svo yfirgengileg, að þeir heyrðu varla í sjálfum sér. Það var í rauninni sama, hvort þeir léku vel eða illa, því að enginn heyrði til þeirra. Ósjálfrátt slógu þeir slöku við leikinn og óttuðust, að þeim mundi fara aftur. Þegar tilkynnt var, að Bítlarnir mundu hætta að koma fram, varð uppi, fótur og fit meðal aðdáenda þeirra. Sá orðrómur komst á kreik, að hljómsveit þeirra mundi leggjast niður og þeir færu hver í sína áttina. Reynt, var að bera þetta til baka og málið útskýrt á þann hátt, að tónlist Bítlanna væri orðin svo breytt, að þeir ættu erfitt með að leika liana á tónleikum. Þeir notuðu iðulega heilar hljómsveitir og ýmis tæknibrögð á hljómplötum sínum, og teldu slíkt nauðsynlegt til að hin nýja tónlist þeirra nyti sín. Bítlarnir léku síðast opinberlega 29. ágúst 1966 í San Francisco í Bandaríkj- unum. Reynt var að hugga aðdáendur þeirra með því, að þeir mundu nú hefja vinnu við gerð nýrrar og óvenju- legrar tólflaga-plötu og inundi verða vandað til hennar meira en nokkurrar annarrar hljómplötu. Nýja platan átti að koma út fyrir jólin. Ymislegt gerðist á þessum tvcimur árum, sem blöð um allan heim gerðu sér mat úr. 12. júní 1965 sæmdi Elisa- beth Englandsdrottning Bítlana orðu. Þessi orðuveiting Jiótti tíðindum sæta og varð nokkuð söguleg. Fjölmarg- ir virðulegir borgarar, sem höfðu hlotið sams konar orðu, móðguðust og skiluðu þeim aftur. Margir sökuðu drottn- inguna um virðingarleysi, en hún mun hafa veitt Bítl- unum orðuna í fyllstu alvöru. Bítlarnir sjálfir skemmtu sér konunglega yfir þessu og litu á það eins og hvert annað grín. T fjórðu og síðustu Ameríkuförinni lct John Lennon svo ummælt, að Bítlarnir væru orðnir vinsælli en Jesús Kristur. Þetta vildu íbúar í liinu svokallaða „Biblíu- belt,i“ í Bandaríkjunum ekki viðurkenna og liófu her- ferð gegn Bítlunum. Plötur jieirra voru brotnar og mynd- ir af þeiin brenndar. Málin lyktaði svo, að John Lenn- an varð að biðjast afsökunar á ummælum sínum. Nýr kapituli var hafinn í sögu Bítlanna. Hér eftir ætluðu jieir að taka lífinu með ró, helga sig hljómplötu- leik og halda sambandi við aðdáendur sína með því móti. „Ökkur var innanbrjósts eins og þegar við fengum frí úr skólanum í gamla daga,“ segir John. Frh. í n. bl. 32 VIIvAN—AFMÆLI8BLAÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.