Vikan - 07.11.1968, Síða 55
ONSON
KIIEIKJARAR
Vanti ykkur tækifærisgjöf þá muniö Ronson. Ronson
kveikjarar fyrir dömur og herra, fjölbreyttara úrval en
nokkru sinni fyrr, einnig úrval af borðkveikjurum.
EinkaumboS:
i. GUÐMUNDSSON & CO. HF.
Hverfisgata 89, Reykjavík.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þér finnst að þú sjáir ekki út úr verkefnunum, en
þú getur áreiðanlega hagrætt þeim betur. Útlit er
fyrir nokkurn fjárskort. Og hvað heillatölunni við-
kemur, þá er hún sjö.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Það cru vandamál heimilisins sem eru einkennandi
fyrir þessa viku. Hafðu það í huga að smá mistök
geta verið ótrúlega dýr. Vertu vel á verði, sérstak-
lega við akstur.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú hefur náð langþráðum áfanga, en það er ekki
þar með sagt að þú megir slá slöku við. Þú verður
að hafa þig allan við til að halda því sem þú hefur
þegar náð. Þú ferð í bíó.
Tvíburamerkið (22. mai
21. júnf):
ÞaS kemur upp svolítill misskilningur í einkalíf-
inu, en hann leysist von bráðar, ef þú lætur þig annt
um það. Þú eignast nýjan kunningja sem þú starfar
mikið með.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú ert áhugalaus og ekki sem ánægðastur með þig.
Keyndu að hrista þetta af þér, leita ráða. Þú verður
: íjölmennu samkvæmi sem gæti fært þér tækifæri.
Gættu fjármálanna og hugsaðu um framtíðina.
Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Það fólk sem er um tvítugt mun lenda i miklum
ævintýrum. Gerðu þér ekki of háar vonir, það er
ekki víst að þú sért á réttu spori. Þú nýtur gest-
risni góðra kunningja. Heillatala er sjö.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlf);
Láttu ekki alla fjöiskylduna blanda sér í málefni
þín. Það lítur út fyrir að aðstaða þín sé ekkl sem
traustust. Konur sem fæddar eru fyrri hluta júlí
mega búast við góðum tiðindum.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar);
Það verður þitt hlutskipti þessa viku að leiðbeina
öðrum. Það er bezt að segja hlutina hreint út. Horf-
ur á vinnustað eru ekki sem bjartastar. Yfirmenn
þínir eru fremur skapstirðir.
Ljónsmerkið (24. júlf — 23. ágúst):
Þú ert örlátari en venja hefur verið og veldur því
hamingjusamt einkalíf. Þú hagnast nokkuð fyrir til-
stuðlan kunningja þíns. Þú gerir góðan samning við
ættingja þinn.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Bréfaskriftir eru undir hagstæðum afstöðum þessa
viku, og á vinnustað verður óvenju líflegt. Ungt,
ólofað fólk verður mikið á ferð og flugi. Útlit er
fyrir bættan fjárhag.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Umhverfi þitt fullnægir ekki kröfum þínum. Þú ert
þvingaður og skaltu leita orsakanna. Þú skorast
undan að rétta skyldmenni þínu hjálparhönd. Þú
færð stóran, fyrirferðamikinn hlut til varðveizlu.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Vertu varkár í orðum og verkum meðal þinna nán-
ustu. Gættu þess að reiðast ekki yfir smámunum.
Undir vikulokin þarftu að taka mikilvæga ákvörð-
un. Leggðu meiri alúð við útlit þitt.