Vikan - 07.11.1968, Blaðsíða 59
Hún neyddi fram bros, var enn
að nudda á sér barminn og
hvæsti ofurlítið um leið og hún
andaði.
Hraust stúlka! sagði Robert.
Það er ekkert að yður?
—■ Ég hefi aldrei á ævinni,
sagði hún veiklulega en stolt, —
fengið neitt sem er svona ná-
kvæmlega — rétt.
Robert gekk til hennar. Hann
sá að hún var ennþá með nýjasta
tilraunamódelið undir vinnu-
sloppnum. Feimnislega lyfti hann
hægri vísifingri. — Má ég . .. .?
Hún kinkaði kolli og dró andann
djúpt.
Robert starði á hana, heillaður.
Svo teygði hann fram höndina
og kleip. Hann kleip aftur. Við
hlið hans hló Doktor Zimmerman
lágum, ánægjulegum hlátri. Hér
varð enginn galli fundinn.
Robert var eins og himinfall-
inn. Auðvitað átti hann að vita
að þetta væri hægt, en að sjá
það svona með sínum eigin aug-
um, að vita að hann hefði náð
sínu takmarki, nei það var of
mikið, það var yfirþyrmandi.
Heimurinn mundi lengi muna
þann sigur, sem hér hafði náðst
í dag.
Hógværlega og fullur virðing;
ar sagði Robert: — Hvílið yður,
Doktor.
Á morgun myndi hann hafa
nógan tíma til að skipuleggja
fjöldaframleiðslu. Og eftir það
myndu hinir miklu dagar hefj-
ast. Allt hans líf myndi breytast
fá nýja meiningu. Heimurinn
sjá nýjan Robert Blossom.
— Harriet, hugsaði hann hlý-
lega, — myndi aldeilis verða
undrandi.
11.
Hávaðinn innan úr húsinu var
óvanalegur að styrk og eðli.
Harriet hafði ekki komið á óvart
að heyra tónlist af plötuspilara
Roberts. Hún var að koma heim
úr verzlunarferð ofan í borgina
og var seinni heldur en hún
hefði átt að vera, vegna þess að
hún hafði rekizt á ýmsa hluti,
sem voru í sannleika sagt kjara-
kaup og svo hafði hún reikað of
lengi um Oxford Street og lent í
umferðarþvögunni um kvöldið
og gert það eina skynsamlega að
setjast inn á veitingahús og fá
sér kaffi og kökur, þar til mann-
flóðið hefði sjatnað á götunum
aftur. Nei, henni hefði ekki kom-
ið á óvart, þótt hún hefði komið
að honum, þar sem hann hefði
setið og hlustað á plöturnar sín-
ar eða jafnvel með uppbrettar
ermar að æfa einhverja hljóm-
sveitina með hálfan huga við
það sem hann var að gera og
hinn helminginn við það hvað
hefði orðið af konunni. En hún
undraðist tónlistina, sem hún
heyrði. Það var ekki um að vill-
ast, þetta var pophljómsveit í
fullum gangi. Og hún heyrði líka
háværar raddir og skræki eins
og partí væri í fullum gangi.
Hún flýtti sér inn.
Þjónn kom á móti henni yfir
anddyrið. - - Gott kvöld, frú. —
Hafið þér boðskort?
Harriet lagði frá sér pinklana
neðan við stigann og steig inn í
setustofuna. Hún líktist ekki
lengur hennar eigin heimili. Pop-
hljómsveitin hamaðist í einu
horninu og ekki sást í meira en
svosem ferfet af gólfteppinu. Það
klingdi í glösum og hláturinn
ólgaði eins og kampavínið.
Og Robert lá á bakinu í miðri
stofunni.
Harriet greip andann á lofti.
Áður en hún gat þotið til að gá
hvað var að, lyfti Robert fullu
vínglasi og setti það á enni sér.
Svo byrjaði hann að reyna að
fikra sig á fætur, án þess að
missa úr glasinu.
Uppi yfir honum stóð Ambrose
og brosti með aðdáun og eignar-
vitund.
Harriet greip andann á lofti
aftur.
Þjónninn tók um olnbogann á
henni, kurteislega en ákveðið.
— Ég á við, sagði hann. —
Eruð þér með einhverjum?
Harriet benti eins og í leiðslu:
— Þessum tveimur.
Þónninn rétti henni glas. Hún
reyndi að ná athygli Ambrose
yfir Robert, sem enn iðaði með
glasið á enninu. Hvað í ósköpun-
um var hann að gera? Var hann
að reyna að skemma allt? Hann
hlaut að vera drukkinn - svo
drukkinn að hann gæti eyði-
lagt allt, sem þau höfðu byggt
upp af svo miklum unaði og ná-
kvæmni.
Robert var nú kominn upp á
hnén. Gestirnir í kringum hann
fóru að telja upp að tíu. Einn
PIRA-SYSTEM
HIN FRÁBÆRA NÝJA
H1LLUSAMSTÆ3A ER í SENN
HAGKVÆM OG ÖDÝR
Það er ekki margt, sem hefur lækkað
í verði að undanförnu. Það liafa PIRA
hillusamstæðurnar gert sökuin hagræð-
ingar og verðlækkunar i innkaupi. Nefn-
ið til hvers þér þurfið hillur og PIRA
er svarið. Odýrustu bókahillur, sem völ
er á, hillur og borð í barnaherbergi, í
vinnuherbergi, í húsbóndaherbergið.
Sjáið myndina hér; þar er skipt á milli
borðstofu og stofu með PIRA-vegg.
Borðstofuskenkurinn sparast. PIRA
hillusamstæður geta staðið upp við vegg,
eða frístandandi á gólfi. Engar skrúf-
ur eða naglar til að skemma veggina.
Notið veggrýmið og aulcið notagildi
íbúðarinnar. PIllA hillusamslæðurnar
eru lausn nútímans.
HÚS OO SKIP hf.
Ármúla 5 — Sími 84415—84416.
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
VIICAN—AFMÆLISBLAÐ 59