Vikan - 06.10.1983, Blaðsíða 6
Skemmtileg diskómúsík!
ER ÞAÐ HÆGT?
Já. Lesið greinina TEXTI: ÁRNI DANÍEL
NEW YORK DISKÓ
Oröiö „diskó” er venjulega
tengt fremur leiðinlegum hlutum,
vélrænum og leiðigjörnum diskó-
takti, því að vera svo fínt klæddur
að maður getur ekki hreyft sig og
fleira í þeim dúr. Þegar orðin
„New York” eru sett framan við
kemur út „New York diskó”. Og
það er svolítið annar handleggur.
Við tuttugasta og sjötta Vestur-
stræti New York-borgar er diskó-
tekið Funhouse í yfirgefinni vöru-
skemmu. Á hverju laugardags-
kvöldi safnast þar saman hálft
þriðja þúsund ungmenna af ýms-
um kynstofnun; krakkar af róm-
ansk-amerískum uppruna, svartir
krakkar og unglingar af ítölskum
uppruna. Þau eru á aldrinum 16—
19 ára og dansa hverja laugar-
dagsnótt frá kl. 10 til hálfníu
morguninn eftir.
Þetta er allt annað en þau New
York diskótek sem íslendingar
hafa haft spurnir af og reynt að
líkja eftir: Xenon og Stúdío 54 sem
eru diskótek fína og fræga fólks-
ins. í The Funhouse og á öðrum
slíkum stöðum, Broadway 96,
Hunt’s Point Palace, Disco Fever,
eru þannig stælar fyrirlitnir.
Krakkarnir koma beint af götunni
og hafa ekki úr of miklu að spila,
en skemmta sér konunglega án
þess.
SAMBLAND
AF ELEKTRÓNÍK
OG FÖNK-DISKÓI
í þessum diskótekum hefur und-
anfarið mótast ný tegund tónlist-
ar sem kölluð er New York diskó.
Hún kemur frá ótal stúdíóum og
smáfyrirtækjum í New York og á
uppruna sinn í evrópskri tölvutón-
list annars vegar og bandarísku
fönk-diskói hins vegar. Það voru
vinsældir þýsku hljómsveitarinn-
ar Kraftwerk í diskótekum New
York-borgar sem upphaflega ýttu
þessu af stað. Það var síðan lagið
Planet Rock sem markaði upphaf-
ið. Lagið var blanda fönk-áhrifa
og synthesizertónlistar, og á eftir
því kom straumur af lögum sem
unnin voru í sama stfl: Walking on
Sunshine, The Message, Play at
your own risk, The harder they
come og mörg fleiri. Þessi lög
hafa mörg verið samin beinlínis
fyrir The Funhouse, því reynslan
hefur sýnt að það diskótek er á
undan timanum og ef krakkarnir
þar hafa gaman af lögunum má
búast við að þau verði vinsæl ann-
ars staðar.
GÖTUMÚSÍK
Krakkarnir vita yfirleitt ekki af
því þegar verið er að prófa lög á
þeim. Arthur Baker, sá sem
samdi Planet Rock og hratt bylgj-
unni af stað, fékk það verkefni að
útsetja og hljóðblanda nýtt New
Order lag, Confusion. Þegar hann
var búinn að því fór hann í The
Funhouse og lagið var spilað án
þess að kynna hver væri á ferð.
Þetta féll vel í kramið. Ekki bar á
öðru. Yazoo varð vinsæl í New
York á sama hátt. Diskótekari var
fenginn til að hljóðblanda eitt laga
hennar og sjá, það sló í gegn.
Heaven 17, Malcolm LcLaren og
Yello eru allt mjög vinsæl nöfn.
Ein þeirra sem sækir staðinn
heitir Melissa. Hún er negri frá
Brooklyn og tilheyrir klíku sem
kallar sig The Juice Crew. Þau
koma vikulega í The Funhouse og
dansa og hafa sinn eigin einkenn-
isbúning, peysu með nafni klík-
unnar á.
— Ef þig langar til að dansa við
einhvern í The Funhouse þá ferðu
bara og byrjar að dansa. Það er
alveg óþekkt að bjóða upp í dans.
Þannig kynnist maður fleirum svo
að þetta er stórskemmtilegt.
— Ég þekki plötusnúð sem tek-
ur upp allar nýjustu plöturnar fyr-
ir mig og svo förum við í Washing-
ton Square-garðinn og förum að
dansa. Hvert sem við förum tök-
um viö segulbandið með og döns-
um.
New York-diskóið er sem sagt
götumúsík, og þess vegna er hún
svona vinsæl. Krakkarnir geta
notað hana hvar og hvenær sem
er.
Islendingar eiga enn eftir að
heyra New York-diskóið, en þeir
hafa heyrt og séð 12” 45 snúninga
plötur, eins og til dæmis Blue Mon-
day með New Order. Þetta form,
12” 45 snún., gefur mikla mögu-
leika á skemmtilegum diskóút-
setningum og það hefur New
York-diskóið notað sér.
7