Vikan


Vikan - 06.10.1983, Blaðsíða 51

Vikan - 06.10.1983, Blaðsíða 51
Fullir menn og mýs Kærí draumráðandi. Eg vona að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig.' Eg og mamma mín vorum staddar í sjoppu hér á staðnum, sem er hætt. Þegar við komum inn lágu fyrrverandi vinnuveitandi minn og bróðir minn á gólfinu úti í horni. Þeir voru fullir. Konan sem var að afgreiða heitir X og hún var grátandi. Svo löbbuðum við út og þá hittum við nokkra stráka en ég man ekki eftir neinum nema fyrrverandi skóla- bróður mínum sem heitir Z. Þeir voru meðþrjár litlar mýs, tvær svartar og eina hvíta. Eg varð ferlega hrædd því að mér fannst þeir ætla að setja þær inn á okkur. Svo hljóp ég af stað og þá var draumurinn búinn. I von um birtingu. Draumadís Draumurinn (nöfnin og drykkjan) bendir til þess að þú munir eiga viðburða- ríkt tímabil framundan og þurfir að standa í talsverðri baráttu til að ná því fram sem þú ætlar þér. Útlit er fyrir að þér takist það þótt það verði ef til vill nokkuð dýrkeypt. Þú þarft áreiðanlega að gæta þess að haga þér eins óað- finnanlega og þú getur og verða þér aldrei til skammar. Ella verður hegðun þín svo sannarlega gagnrýnd. Sérstaklega þarftu að vanda valið á vin- um þínum og gæta þess að leggja ekki lag þitt við lítilsigldar persónur. Ef þér tekst þetta vel máttu búast við því að sigurinn verði sætur þegar fram í sækir og það er ekkert ólíklegt að á þessu tímabili verði lögð drög að því sem seinna verður hjónabandið þitt. Nektardans og hestar Kæri draumráðandi. Mig dreymdi fyrir stuttu að ég væri að dansa úti á túni en þegar ég loksins hætti var fullt af fólki að horfa á mig. Þegar ég sá það klæddi ég mig úr öllum fötunum og fór að dansa nektardans. Svo fannst mér að ég stæði allt í einu við glugga og horfði út. Þá sá ég tíu rauða hesta. Eg ætlaði að reka þá burt en þegar ég kom út var bara einn hvítur hestur. Eg var eitthvað svo hissa. Þá vaknaði ég. Eg bara skilþetta ekki og bið þig að ráða þennan draum fyrir mig. Takk fyrir birtinguna. Bæ. Ein sofandi Þessi draumur bendir til þess að þú hafir einum of mikla minnimáttarkennd og sért hrædd um að fólk sé að tala illa um þig á bak, finni þér allt til foráttu og beri út um þig sögur. Þegar til á að taka og þú þorir að athuga hvað hæft sé í þessu kemstu hins vegar að raun um að það er hreint ekki eins slæmt og þú heldur og flestir vilja þér ekkert nema gott. Það væri gott fyrir þig að reyna að skríða út úr skelinni og athuga hvað hæft er í þessum hugleiðingum hjá þér. Ef til vill áttu, eða hefur átt, við veikindi að stríða og það valdið einhverju um þetta vantraust á sjálfri þér, en það stendur þá greini- lega allt til bóta. Mannætuhákarlar Kæri draumráðandi. Núna í nótt sem leið dreymdi mig þennan draum, sem er svona: Eg var með einhverjum krökkum hjá árbakka. Við ætluðum að ganga yfir brú, sem var þarna, en einhvern veginn gátum við það ekki af því að stórir mannætu- hákarlar voru þarna og við urðum ofsa hrædd. Hákarlarnir stukku alltaf upp í loft og niður aftur líkt og höfrungar. Nokknr krakkar voru komnir yfir ána en ég og einn strákur áttum eftir að farayfir. Það var ofsalegur straumur í ánni. Loksins komumst við þó yfir. Allt í einu sá ég að einn úr hópnum var dott- inn íána og mér fannst eins og hákarlarnir væru að rífa hann í sig þótt ég hafi ekki séð það. Svo sá ég líka haus af krókódíl undir spýtum og varð skíthrædd. Allt í einu vorum við komin eitthvað annað, ég get ekki skýrt hvert. Eg sat við hliðina á strák sem var að leita að einhverju. Hann var æðislega sætur og ég varð strax hrifin af honum. En ég hélt líka að hann værí hrifinn afmér. Augun voru svo sérkennileg. Bæ, bæ. Ein dreymin P.S. Hvað merkir að vera ein á skipi úti á sjó í rauðum fötum. Að vera ein á skipi úti á sjó í rauðum fötum bendir til þess að ástardraumarnir rætist, svo framarlega sem það er ekki of vont í sjóinn. Hákarladraumurinn getur merkt erfiðleika og ósamkomulag og jafnvel verið fyrirboði þess að ein- hvern tíma á ævinni lendir þú í meiriháttar lífsháska sem þú munt þó komast heil á húfi úr. Svo er rétt að geta þess að þessi hákarladraumur hefur á sér martraðarblæ og martraðir eru aldrei tákn- draumar. Ef draumurinn endur- tekur sig skaltu ekkert mark taka á honum. Kvikmyndir í kvikmynda- húsum og sjónvarpi hafa oft mikil áhrif á mann í draumi og auðvitað er ekkert að marka draum um hákarla ef maður er nýbú- inn að sjá Ökindina eða aðrar viðlíka ókindur, best að taka það fram líka. Urval TÍMARIT I k FYRIR ALLA / 40. tbl. Víkan 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.