Vikan - 06.10.1983, Blaðsíða 24
NOKKUR GÓÐ RÁÐ
UM HVERNIG BREGÐAST
má m svmsónA
Fyrir nokkrum vik-
um skrifuðum við um
poppstjörnur sem
haldnar eru sviðsótta.
Það eru ekki aðeins
stjörnurnar sem eru
haldnar þessum ótta,
leikarar, íþróttamenn,
stjórnmálamenn og
fjöldi annarra, sem
þurfa að koma fram
fyrir almenning, þjá-
ist af þessum ótta.
Margir leikarar sem
leikið hafa í fjölda
ára, eins og til
dæmis Laurence
Olivier og James
Stewart, hafa aldrei
getað losnað við
sviðsóttann.
24 Vikan 40. tbl.
Flestir þurfa ein-
hvern tímann að
standa upp og halda
ræðu. Það getur ver-
ið í fimmtugsafmæli
vinar, á kennarafundi
eða fundi í verka-
lýðsfálaginu. Margir
koma einhvern tíma
fram í sjónvarpi eða
útvarpi og þá er gott
að hafa eftirfarandi í
huga. Þetta eru sem
sagt góð ráð til
þeirra sem haldnir
eru sviðsótta.
+ Æfðu það sem
þú ætlar að segja út
af fyrir þig, fyrir
framan spegil. Ekki
skrifa ræðuna orð
fyrir orð, punktaðu
hjá þér aðalatriðin og
æfðu þig í að tala út
frá þeim. Það er um
að gera að þekkja
vel það sem þú ætlar
að tala um, þannig
að þú getir talað við-
stöðulaust út frá
punktunum.
+ Undirbúðu þig
fyrir sviðsóttann. Þú
veist að hann kemur
og hafðu ekki áhyggj
ur af honum. Skjálft-
inn, það að hitna og
kólna á víxl, kaldur
sviti, þurr munnur,
allt eru þetta gamlir
kunningjar þeirra sem
tala mikió opinber-
lega. Taktu þessu
eins og það kemur
fyrir, þetta hverfur
þegar líður á ræðuna.
+ Þú skalt bú-
ast við hinu besta.
Hugsaðu þér að þú
sért að halda góða
ræðu og ekki búast
fyrirfram við því að
ræðan verði hörm-
ung. ímyndaðu þér
að þér gangi stórvel,
hafir mannfjöldann á
valdi þínu. Hlustaðu
á klappið. Það er að-
eins í gömlum kvik-
myndum sem áheyr-
endur kasta tómötum
í ræðumanninn.
+ Ekki taka sjálf-
an þig of alvarlega.
Sviðsskrekkur stafar
oft af þörf ræðu-
mannsins fyrir full-
komnun. Enginn býst
við fullkomnun. Af
hverju skyldir þú
ekki mega gera mis-
tök eins og Jón og
Margrét?
+ Ekki er gott að
slaka of mikið á milli
efnisatriða í ræðunni
en hæfileg slökun er
þó góð. Svolítill
taugatitringur kemur
að gagni. Andaðu
djúpt, segðu sjálfum
þér að þetta gangi
allt saman mjög vel.
+ Þegar þú átt að
fara í ræðustól,
reyndu þá að slaka
á, en ekki of mikið.
Svolítill taugatitringur
hjálpar þér við að
hugsa skýrt. Andaðu
djúpt, segðu sjálfum
þér að þér muni
ganga vel. Labbaðu
um ef þú getur,
hugsaðu um aðalat-
riði ræðunnar og
farðu með fyrstu
tvær mínúturnar upp
hátt. Svo er bara að
vinda sér upp að
ræðupúltinu.