Vikan - 06.10.1983, Blaðsíða 7
Guðfast, spi/fíng og bfóð...
SAGT FRÁ LEÐURBLÖKUHELLINUM I LONDON
Texti: Árni Daníel
Þetta undarlega fólk sem sjá
má hér á síðunni kemur frá Lond-
on. Þar hefur að undanförnu ríkt
hin mesta óöld í klæðaburði, unga
fólkið á götum borgarinnar líkist
helst meðlimum í djöflatrúarsöfn-
uði. Ákveðinn klúbbur hefur orðið
miðstöð þessa fólks og ber hann
hið drungalega nafn Leðurblöku-
hellirinn. Helstu hljómsveitirnar
sem þar koma fram nefnast The
Specimens og Sexbeat. Það eru
einmitt meðlimir þeirra hljóm-
sveita sem sjást hér. Specimens
er sú vinsælasta en Sexbeat er
einnig mjög vinsæl. Hún er skipuð
einum strák og tveimur stelpum.
Strákurinn heitir Hamish og leikur
á gítár og syngur, Sophie spilar á
bassa og Linzi á trommur.
Hljómsveitin hét áður Sex
Beatles og var töluvert vinsæl á
Spáni. Síðan kom hún til Bret-
lands, skipti um nafn og tók þátt í
að byggja upp stemmninguna í
kringum Leöurblökuhellinn. Eins
og nafnið gefur til kynna er tónlist
þeirra allkynferðisleg. Linzi,
stelpan sem spilar á trommur, vill
helst spila nakin á sviði en fær
ekki að gera það fyrir klúbb-
eigendunum.
Danielle Dax er svolítið á sömu
línu og Sexbeat. Hún var áður í
hljómsveitinni Lemon Kittens og
stundaöi það þá að koma fram
allsnakin á sviöi, en huldi líkama
sinn að hluta meö síðu hárinu og
málaði sig svo alla. Hún er núna
að gera tilraunir með að klæða sig
úr niður að mitti og varpa síðan
skuggamyndum af eigin
málverkum á sjálfa sig. Danielle
er annars nýbúin að hljóðrita
plötu. Á þeirri plötu spilar hún
sjálf á öll hljóðfæri og syngur. Hún
segist hafa gert það til aö sýna að
kvensöngvarar þurfi ekki alltaf að
hafa heila hljómsveit á bak viö
sig, en geti gert þetta allt sjálfir.
Svo við snúum okkur aftur að
Leðurblökuhellinum, þá varð
hann frægur að endemum þegar
Michael Fagan, sá sem settist á
rúmstokkinn hjá Elísabetu II.
Bretadrottningu án leyfis, söng
þar opinberlega. Hann söng lagið
Anarchy in the UK sem Sex
Pistols geröu frægt um árið. Ekki
fara fregnir af því hvernig Fagan
var tekiö, né hvort ferill hans
hefur náð lengra.
Sexbeat
Danielle Dax
The Specimens
Einn af aðdáendunum
40. tbl. Vikan 7