Vikan - 06.10.1983, Blaðsíða 36
Sýning í Metropolitan Museum of Art:
Umsjón: Hrafnhildur.
Sumarfatnaður hcfðarkvcnna frá seinni hluta 20. aldar.
La Belle Epoque, 1890—1914
Enginn vafi er á því að sýning-
in La Belle Epoque, sem haldin
var í Metropolitan Museum of
Art á dögunum, hefur vakið
feikna hrifningu, bæði áhorf-
enda og fjölmiðla. Forsprakki
sýningarinnar er engin önnur en
drottning tískunnar, Diana
Vreeland, sem var tískuritstjóri
Harpers Bazaar í 28 ár og síðan
aðalritstjóri Vogue þar til hún
dró sig í hlé 1971. En Vreeland
er ekki dauð úr öllum æðum
enn. Hún setur árlega upp sýn-
ingar í Metropolitan Museum of
Art, sýningar sem sameina bæði
búningasögu mannkynsins og
tísku og er La Belle Epoque 11.
sýningin sem hún heldur.
Á þessa sýningu safnaði Vree-
Diana Vreeland, oft kölluð
drottning tískunnar.
land saman rúmlega 150 bún-
ingum karla, kvenna og barna
frá ámnum 1890—1914. Þar gaf
að líta ekki ómerkari búninga en
sparikjóla Viktoríu og Alexöndru
og kjóla Sömh Bernhardt, Lillie
Langtry og konu Corneliusar
Vanderbilt.
Diana Vreeland og fjöldi að-
stoðarmanna hennar gætti þess
vandlega að ekkert smáatriði
vantaði í sýninguna til að skapa
sem réttast umhverfi fyrir bún-
ingana. Og á meðan opnunar-
gestir sýningarinnar, Raquel
Welch og eiginmaður hennar,
Andre Weinfeld, tískumódelin
Lauren Hutton og Cheryl Tiegs
og tískukóngurinn Halston
ásamt fleiri góðum gestum, ráf-
uðu um sýningarsali umvafin
ilmi L’Heure Bleu, nýjasta ilm-
vatninu frá Guerlain, var spiluð
tónlist Offenbach sem undir-
strikaði vel höfugt andrúmsloft-
ið. Jafnvel matsalur sýningarhall-
arinnar lék sitt hlutverk. Þar
hafði Pierre Cardin, tískuhönn-
uður og eigandi hins eina sanna
Maxim’s í París, búið til efdrlík-
ingu af aðalmatsal Maxim’s. Það
kostaði litlar 14 þúsund krónur
að njóta allrar þessarar dýrðar, en
færri komust að en vildu. Hinir
heppnu svifu út um dyr hallar-
innar, umvafðir liðnum dýrðar-
ljóma, og margir höfðu á orði að
mikils fæmm við nútímafólk á
mis, að líta ekki á fatahönnun
sem iistgrein eins og forfeður
okkargerðu!
36 Vikan 40. tbl.