Vikan


Vikan - 06.10.1983, Page 31

Vikan - 06.10.1983, Page 31
cc < z G/æsi/egustu tón/eikar hér á /andifrá upphafi: z >- j „IZ/ð krefjumst framtíðar! < s 4000 manns krefjast framtíðar í Laugardalshöllinni I lljómleikamir í Laugardals- höllinni þann 10. september síöast- liöinn tókust framar öllum vonum. Um 4000 manns keyptu sig inn á hljómleikana og uröu 1000—1500 manns frá að hverfa vegna þess að ekki var hægt að hleypa fleir- um inn. Þessi mikla aösókn er þeim mun gleðilegra vegna þess aö á fyrri hljómleika í Laugar- dalshöll í sumar mættu fáir, 1000— 1500 manns. Hljómleikarnir voru haldnir undir slagoröinu „Viö krefjumst framtíðar”, sem ekki virðist mikil frekja en þrátt fyrir þaö sorglega viðeigandi. Þessa miklu aðsókn viröist mega skýra annars vegar með hljómgrunninum sem þetta slagorö fær og hins vegar meö því að þarna var boöið upp á flest það besta sem íslensk rokktónlist hefur að bjóða. Ekki má þó gleyma erlendu gestunum, Crass, sem stuðluðu mjög vel að því að svona vel tókst tÚ. Umgerðin Umgerð tónleikanna var sér- staklega glæsileg. Yfir sviðinu var stór boröi sem á var letrað, gult á svörtum grunni, „Við krefjumst framtíðar”. Oft var ljóskastari látinn leika um þennan borða til að minna fólk á af hverju það var þarna. Til hliðar hafði leikhóp- urinn Svart og sykurlaust komið sér fyrir á pöllum með margs konar litlar uppákomur og sýning- ar. Ljós lýstu þessa palla upp til skiptis þannig að úr varð fjöl- breytileg skemmtun. Einnig voru sýndar kvikmyndir og skugga- myndir á hliðarveggjum. I forsalnum var stórt og glæsi- legt málverk, málaö af Oskari Jónassyni úr Ogsmá. Ég ætla ekki aö fara að gerast myndlistargagn- rýnandi en mér finnst málverk hans og önnur myndverk njóta sín best í mikiili stærð. Þeir Ogsmár- menn áttu einnig heiðurinn af hryllingsdýrinu sem var framan á Höllinni þetta kvöld. Á gólfinu í forsalnum var síðan ruslahrúga, flugvélarflak eða eitthvað slíkt, afgirt meö gaddavír. Þetta var einnig eftir Ogsmá. Tónlistin Tónlistin var rokk, hart og dríf- andi rokk, sem keyrt var allt kvöldið af miklum krafti og sannfæringu. Þegar harðasta bandið, CRASS, kom upp á svið var fólk orðið þreytt og viðtökum- ar ekki eins góðar og hljómsveitin átti skilið. Þeir Crassarar eiga mikinn heiður skilinn fyrir það hvernig þeir stóöu að komu sinni hingað. Islensku hljómsveitirnar sem fram komu stóðu sig allar mjög vel. Svart og sykurlaust, Ogsmá, Kukl, Egó, Ikarus og Vonbrigöi, allt saman pottþéttar hljóm- sveitir. Plöturnar Fingraför, The Boys from Chicago og Kakófónía, auk nýju litlu plötu Kuklsins, hafa allar undirbúið jaröveginn, verið vinsælustu plötumar í sumar. Það er eins og þær hafi aðeins verið forleikur að þessari miklu hátíð. Svart og sykurlaust lék drunga- lega synthesizertónlist sem setti stemmninguna í upphafi. Þar á eftir kom Kukl með sitt þunga pönkabillí. Þar er á ferðinni bráð- efnileg hljómsveit. Á eftir henni kom Egóið. Egómenn hafa ekki haft vindinn með sér í sumar en þarna sýndu þeir og sönnuðu að hljómsveitin er alls ekki dauð úr öllum æðum. Mér fannst hún fylli- lega jafnoki allra hinna, með kraftinn á hreinu. Eftir það kom Ikarus, fyrst með Tolla Morthens sem söngvara og síðan með Megas. Hljómsveitin hefur náð miklum árangri á þeim skamma tíma sem hún hefur starfað en var eins og tvær hljómsveitir vegna þess hve hvor söngvari um sig er óhemju sterkur persónuleiki. TolÚ söng af sama krafti og bróðir hans, Bubbi. Textar Tolla eru jafnvel enn beittari ef eitthvað er. Þegar Megas steig svo á sviðið varð manni ljóst að hér var á ferð konungur íslensks rokks. Þetta var mikill sigur fyrir hann, að koma þarna fram í fyrsta skipti í fimm ár og þaö á stærstu tón- leikum sem hér hafa verið haldnir lengi. (Þetta voru að minnsta kosti þeir stærstu síðan 1978 og jafnvel síðan 1971). Vonbrigði komu síöust íslensku hljómsveitanna og stóðu sig með prýði. Það er ekkert áhlaupaverk að koma fram á eftir öðrum eins stórmennum en það gekk upp. Þannig hljómsveit er Vonbrigði. Fólkið Stemmningin í salnum var frá- bær. Fyllirí var í algjöru lágmarki miðað við fjöldann, þótt töluverð læti hafi veriö niðri á klósettum og í forsalnum. En það er bara eðli- legt þegar ungt fólk kemur saman í slíkum fjölda að skemmta sér. Það sem mest var áberandi var einhugur fólksins, einhugur um slagorðið „Við krefjumst fram- tíðar” og einhugar um að skemmta sér á hófstilltan hátt undir því slagorði. Ég get ekki orða bundist vegna viðbragöa fjölmiðla við samkom- unni. Þeir sýndu flestir algjöra fyrirlitningu á því fólki sem þarna kom saman, annaðhvort meö því að þegja um samkomuna eða þá að draga fram verstu hliðar hennar. Það er sorglegt og dapurlegt aö fjölmiðlar landsins skuli fara þannig með það fólk sem er að krefjast framtíðar og reyna að búa til framtíð. Unga fólkið er framtíðin en þeir sem ráða á fjölmiðlunum virðast alls ekki gera sér grein fyrir því. Sennilega hafa þeir litið á þetta sem hverja aðra fylliríssamkundu og alls ekki gert sér ljóst hvaö þarna var á ferð. Þess meiri ástæða er til að halda starfinu áfram og sýna það að unga fólkinu hér á landi er ekki sama um fram- tíðina þótt ýmsir haldi (og kannski voni) annaö. 40. tbl. Vikan 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.