Vikan - 06.10.1983, Page 45
r
andi þjónustustúlku hérna, þar
sem ég get haft auga meö henni.
Ég tek enga áhættu í spilavítunum
mínum.”
Kevin hnyklaði brýnnar, velti
fyrir sér hvort þetta væri mælt af
einlægni.
„Hr. Cabarelli, þú hlýtur aö
hafa kynnst Laurel töluvert vel
...” Hann þagnaði þegar gest-
gjafi hans lyfti annarri auga-
brúninni.
„Veistu hvort hún átti einhvern
vin? Ég á viö einhvern sem hún
var verulega hrifin af, var ef til
villíuppnámiyfir?”
Vincent íhugaöi spurninguna
með alvörusvip.
„Skollinn hafi þaö, hr. Driscoll,
ég þarf ekki aö segja þér hvaö
dóttir þín lítur vel út. Allir menn
myndu falla umsvifalaust fyrir
henni. En ég veit ekki hvort hún
var á f östu meö neinum. ’ ’
Kevin varö undrandi yfir til-
finningahitanum í rödd ítalans.
„Já—já,” samsinnti hann loks.
„Þú hefur eflaust á réttu að
standa. Laurel þroskaðist svo
hratt eftir að hún kom til Banda-
ríkjanna. Ég tók kannski ekki eftir
því hve mikið hún þroskaðist.”
Vandræöaleg þögnin rofnaöi
þegar síminn hringdi hvellt á
skrifborðinu. Vincent hlustaði á
þaö sem sagt var, augu hans voru
dáleiöandi er þau mættu augum
Kevins.
„Þakka þér fyrir, Tony.” Hann
lagði símtólið á og tilkynnti hinn
rólegasti: „SVGO eru útbreidd í
Bandaríkjunum. Þau voru stofnuð
í Maine, af fáeinum ofstækisfull-
um fræðimönnum. í samtökunum
er aðallega námsfólk og auk þess
heilmikið af fólki með of mikla fé-
lagslega vitund og nógan tíma.”
„Þú eyðir ekki tímanum til
einskis, hr. Cabareili.”
„Eins og pabbi minn sagöi ævin-
lega, hr. Driscoll. . .” Hann lauk
ekki við setninguna, kærði sig ekki
um aö endurtaka sig, bætti svo
við: „Ég hef frétt að vissir utan-
bæjarmenn hafi áhuga á mót-
mælaaðgerðum SVGO í New
York.”
„Hvers konar utanbæjar-
menn?”
„Skuggalegt fólk. Ég get ekki
sagt þér fleira í kvöld. En. . .”
Hann reis á fætur, batt enda á
samræðurnar meö loforði. „Eg
skal finna dóttur þína, hr. Dris-
coll. Láttu mig vita hvar þú býrð
og ég skal hafa samband. Þú lítur
út fyrir aö þurfa að sofa vel í
nótt.”
Eftir að þeir höfðu kvaöst með
handabandi fór Kevin tregur burt.
, Hvcrt
pessara
tungumála
langar þig
til að tala?
Frönsku, þýsku, ensku eða dönsku? Eða
viltu e.t.v. frekar teygja þig til fjarlægari
landa og læra grisku eða japönsku? Með að-
stoð hinna rómuðu Linguaphone tungu-
málanámskeiða verður námið þér á engan
hátt ofraun. Það sannar reynsla yfir fjögurra
milljón nemenda um allan heim, af öllum
þjóðemum og á öllum aldri. Allir hafa þeir
aukið við tungumálakunnáttu sína gegnum
Linguaphone. Þú getur auðveldlega orðið
einn þeirra.
Auðvelt og
ánægjulegt
Yfir 200 tungumálamenn um ailan heim
hafa komið við sögu í 60 ára þróun Lingua-
phone námskeiðanna. Afrakstur þeirrar
vinnu er margreynt og fullkomnað náms-
kerfi, sem hefur reynst ótrúlega einfalt en
fljótvirkt. Heyrnar og sjónminni leggjast á
eitt og á örfáum mánuðum lærirðu nýtt
tungumál. Ekki með þrotlausu striti yfir
glósubókum í kennslustundum, heldur með
auðveldu og ánægjulegu námi í stofunni
heima.
35 tungumál
Linguaphone tungumálanámskeiðin eru
fáanleg bæði á segulbandsspólum (kassett-
um) eða á litlum hljómplötum. Bækumar
fást ýmist með enskum eða dönskum
skýringartextum.... og nú er danska nám-
8keiðið fáanleg í fyrsta sinn með íslenskum
texta.
Hringdu eða skrifaðu eftir frekari upplýsing-
um um eitthvert eftirtalinna tungumála-
námskeiða. Okkar er ánægjan ef við getum
aðstoðað.
V.
Kassettur eða
eða skrifaöu eftir upplýsingabæklingi
Hljóófærahús Reykjavíkur
Laugavegi 96 - Sími13656
Spænska (KastllKa)
Spænska (Rómanska Amenka)
Portúgalska
Serbó-króatiska (Júgóslavia)
Hebreska
Nýpersneska
Stöóluö arabiska
Alsirsk arabíska
Egypsþ arabiska
Mandarinska (Kinverska)
Kantónska (Kinverska)
Afrikanska
Súlska (Zulu)
Svahilska (Swahill)
Hindverska (Indland)
Malajiska
Indónesíska
hljómplötur
Norska
Sænska
Danska
Flnnska
fslenska
Þýska
Hollenska
Enska 1, 2 og 3
frska
Velska
Franska
italska
Pólska
Tékkneska
Amerísk enska
Rússneska
Japanska