Menntamál - 01.12.1941, Side 7
MENNTAMÁL
101
Starfssvið það’, sem Benedikt skóp með stofnun ungl-
ingaskóla í Húsavík og búskaparstörfum í Garði full-
nægði honum ekki. Hugsjónamaðurinn og umbótamaður-
inn sterki og atorkusami náði ekki til menningaráhrifa
á nógu marga með þeim hætti. Hann flutti því fyrirlestra
um menningarmál og íslenzka tungu heima í Húsavík og
ferðaðist um skeið um sýsluna í sömu erindum.
Hann var áhrifamikill fyrirlesari, skýr í hugsun og rök-
fastur, talaði af mælsku, en stillt, og málið var þróttugt
og fagurt.
Tómstundir sínar notaði Benedikt til fræðiiðkana í
íslenzku og til lesturs merkra erlendra rita.
En hugljúfasta viðfangsefni hans var þó jafnan að auka
kunnáttu sína á lögmálum fyrir þróun og breytingu ís-
lenzkrar tungu, því að honum var sú vissa í brjóst lögð,
að „orð er á íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu“.
Þá samdi hann fyrstu drög til kennslubókar sinnar í mál-
fræði, kenndi hana í handriti og endurbætti hana smátt
og smátt, unz hann lét prenta hana og gefa út löngu síðar,
eins og kunnugt er. En hún er ágætasta kennslubók í mál-
fræði, sem enn hefur verið samin fyrir efstu bekki barna-
skólanna og alþýðuskólana.
Haustið 1914 tók Benedikt við stjórn barnaskólans í
Húsavík og hafði á hendi stjórn beggja skólanna, unz
hann hætti skólastörfum um haustið 1940. Hafði hann
þá stundað kennslu alls í yfir 40 vetur.
Ekki gat hjá því farið, að Benedikt tæki þátt í i’leiri
störfum en þeim, sem beinlínis snertu skólastarfið. Enda
tók hann mjög virkan þátt í málefnum sveitarinnar, bæði
ræktunarmálum kauptúnsins og öðru því, er til umbóta
horfði. Má segja, að öllum velferðarmálum hafi hann
verið styrktarmaður á beinan eða óbeinan hátt og átt
frumkvæði að ýmsu því, er lengst verður búið að.
Benedikt var oddviti Húsavíkurhrepps frá 1922—1937.
Varð þaö starf með hverju ári æ umfangsmeira, og hvíldu