Menntamál - 01.12.1941, Page 81
MENNTAMÁL
175
Þýzkir skólar í Rúmeníu.
Rúmenska ríkisstjórnin hefur gefið út viðauka við fræðslulög lands-
ins, þar sem Þjóðverjum í Rúmeníu er veitt leyfi til þess að hafa
þýzka skóla og láta innleiða þýzkar skólabækur. Þó hefur rúmenska
kennslumálastjórnin að einhverju leyti hönd í bagga með stjórn skól-
anna. Þýzkir kennarar, sem sendir eru frá Þýzkalandi, skulu launaðir
af Þjóðverjum.
Fimm hundruð ára
afmælis prentlistarinnar, sem raunar var árið 1940, hefur verið
minnst víða, þrátt fyrir styrjöldina. í Svíþjóð var höfð mikil sýning
á Skansinum í Stokkhólmi í tilefni afmælisins. Hér á landi hafa
prentarar gefiö út mjög vandaða bók, sem sýnishorn af list prentar-
ans. Er það einhver dýrasta bók, sem gefin hefur verið út á íslandi.
Mun bókin gefin út í fáum eintökum og kostar 100 kr. hvert.
Samúð til norskra kennara.
Norskir kennarar búa nú við hinar mestu hörmungar, eins og öll
norska þjóðin. Starf þeirra er lagt í rústir, virðingu þeirra misboðið
og þjóðleg verðmæti og réttindi fótum troðið af nazistum. Sænskir
kennarar hafa vottað norsku kennarastéttinni samúð sína. í ávarp-
inu er lögð áherzla á, að norskir kennarar berjist gegn skipulagi, sem
ekki geti samrýmst norrænum hugsunarhætti, og sú ósk látin í ljós,
að brátt renni upp betri tímar.