Vorið - 01.09.1964, Qupperneq 3
VORIÐ
TÍMARIT FYRIR
BÖRN OG UNGLINGA
Kemur út í 4 heftum ó óri, minnst 48 blaðsíður hvert hefti. — Árgangurinn
^°star kr. 55.00 og greiðist fyrir 1. maí. — Útsölumenn fó 20% inn-
^eimtulaun. — Utgefendur og ritstjórar: Hannes J. Magnússon, skóla-
stióri, Hrafnagilsstræti 12, Akureyri, og Eiríkur Sigurðsson, skólastjóri,
^vannavöllum 8, Akureyri. — Prentað í Prentsmiðju Björns Jónssonar h.f.
30. ÁRGANGUR
JÚLÍ—SEPTEMBER
3. HEFTl
RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR,
Rithöfundur
/ flestum barnaskólum landsins vinna börnin í tómstundum sínum eitt-
hvað að leikstarfsemi, fyrir bekkjarskemmtanir eða ársskemmtun. En mikill
shortur var á barnaleikritum fyrir þessa starfsemi. Kennarar fögnuðu því
útkomu „Ævintýraleikja“ Ragnheiðar Jónsdóttur 1934. Þar voru íslenzku
tevintýrin sviðsett á skemmtilegan hátt. Ótvírœðir rithöfundarhæfileikar
'tomu fram r þessum leikritum. Enda hefur Ragnheiður ritað mikið fyrir
börn frá þeim tíma. Nú hafa „Ævintýraleikirnir“ komið út í nýrri aukinni
útgáfu í tveim bindum.
Að þessu sinni ætlar „Vorið“ að kynna
frú Ragnheiði Jónsdóttur með nokkrum
orðum og birta nýjan bókarkafla eftir hana.
Ragnlieiður Jónsdóttir er fædd 9. apríl
1895 á Stokkseyri. Hún tók kennarapróf
1923 og starfaði nokkur ár við barna-
kennslu. Hún dvaldist rúmt ár, 1946 til
1947, á Norðurlöndum við ritstörf og lest-
ur bókmennta. Auk þess hefur hún farið
styttri ferðir til Englands og Bandaríkj-
anna. Hún er gift Guðjóni Guðjónssyni
VORIÐ 97