Vorið - 01.09.1964, Page 31

Vorið - 01.09.1964, Page 31
PRINSESSAN Á BAUNINNI ÆVINTÝRALEIKUR í 4 ÞÁTTUM 1. þáttur. (í hallarsalnum. Kóngurinn og drottningin sitja í hásæti. Hirðmenn og hirðmeyjar standa í kring. Prinsinn kernur inn, hneigir sig auðmjúklega fyr- lr hásætinu). Persónur: Kóngurinn, drottningin, prinsinn, prinsessan Jsold, Lúísa, María, hirðmeyjar og hirðfólk). KÓNGURINN: Sonur minn, móðir þín °g ég höfum komið okkur saman um, að tími sé kominn til að þú kvænist. Við erum að verða gömul og viljum helzt, að þú og prinsessan þín verðið kóngur og drottning í ríkinu svo fljótt, sem hægt er. (RlNSINN: Jæja, pabbi. En hafið þið ákveðið hvaða prinsessu ég eigi að fá? ÖROTTNINGIN: Nei, drengur xninn, það vildum við ekki. Við viljum, að þú ráðir þ ví sjálfur. Þú skalt fara út 1 heiminn og leita að góðri og fal- Rgri prinsessu. RRinsinn : Beztu þakkir, pabbi og rnamma. Ég skal gera það, sem ég get, til að finna prinsessu, sem verður eins goð og vitur drottning og þú hefur verið, mamma. ROTTNINGIN lyftir hendinni og seg- ir alvarlega og lágt): En mundu, að það verður að vera sönn prinsessa. ALLIR: Já, sönn prinsessa. Tjaldið. 2. þáttur. (Sama leiksvið). KÓNGURINN (við drottninguna): Nú hefur sonur okkar verið fjarverandi í nærri heilt ár. Hann hlýtur að fara að koma heim. DROTTNINGIN: Já, við skulum vona það. Ég sakna hans svo mikið, og hlakka til að sjá brúðina hans. En það er gott að hann gefur sér góðan tíma til við svo vandasamt val. (Það heyrist hávaði og mannamál úti fyrir Prinsinn kemur inn og hneig- ir sig). PRINSINN: Kæri pabbi og marnma, þá er ég aftur kominn heim. KÓNGURINN: Velkominn heim, dreng- ur minn. DROTTNINGIN (teygir hendurnar í áttina til hans, en hann gengur til hennar og faðmar hana): Það er in- dælt, að þú skulir vera kominn. Og sýndu okkur nú brúði þína. (Hirðfólkið talar saman, án þess þó að til þess heyrist). VORIÐ 125

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.