Vorið - 01.09.1964, Blaðsíða 33

Vorið - 01.09.1964, Blaðsíða 33
á rúminu. Ofan á hana skuluð þið láta tuttugu stangdýnur og ofan á þær aðrar tuttugu æðardúnssængur. Þegar stúlkan vaknar á morgun fáum við að heyra, hvort hún hefur fundið til baunarinnar. Ef hún hefur ekki fundið til hennar, er hún ekki sönn prinsessa. Skilurðu mig, María? ^tARÍA (hneigir sig): Já, göfuga drottning. (Fer). Tjaldið. 4. þáttur. (Sama leiksvið). Kóngurinn, drottningin, prinsinn og hirðfólkið er i hallarsalnum. Prinsess- an kemur inn. Hún er falleg í nýjum kjól, en gengur ofurlítið álút og heldur bakið). ^RlNSESSAN (hneigir sig): Góðan <iag, heiðraði kóngur og drottning. Ég þakka fyrir, að þið hafið veitt rnér húsaskjól í nótt. ÖROTTNINGIN: Góðan dag. Ég vona, að þú liaíir sofið vel í nótt? PRlNSESSAN: f sannleika sagt hefur mér varla komið blundur á auga. Þó að hirðmeyjarnar byggju vel um mig, hef ég legið og velt mér í alla nótt. ^ér fannst ég liggja á einhverju I'örðu. Ég skil ekkert í þessu. ÖROTTNINGIN ( rís á fætur): En það skil ég. Til að reyna þig og vita hvort þú værir sönn prinsessa, hað ég hirð- Itleyjarnar að leggja haun á hotninn a rúminu. Fyrst þú varzt hennar vör, nefur þú sannað, að þú sagðir satt í gær. RRinsinn (rís á fætur): Kæra prin- sessa, enginn er ánægðari en ég yfir þessu. Frá því ég sá þig í gærkvöldi, hef ég hugsað um, að þú mundir vera sú prinsessa, sem mig hefur dreymt um að fá fyrir konu. Og nú spyr ég þig,. ísold, villu verða drottningin mín? PRINSESSAN (brosir og hneigir sig): Já, göfugi prins. Það er mér ljúft. KÓNGURINN og DROTTNINGIN (rísa á fælur og taka prinsinn og prinsessuna milli sín): Til hamingju, kæru börn. KÓNGURINN: Ég er viss um, að prins- inn okkar hefur valið vel. Prinsessa ísold lítur út fyrir að vera góð, og falleg er hún. DROTTNINGIN: Já, nú getum við ör- ugg lagt ríkið í hendur þeirra sonar okkar og ísoldar. HIRÐFÓLKIÐ (hrópar): Til hamingju, hjartanlega til hamingju. Tjaldið. (E. Sig. þýddi). VORIÐ \21

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.