Vorið - 01.09.1964, Blaðsíða 48

Vorið - 01.09.1964, Blaðsíða 48
 BOKARKAFLI Hér kernur nýr bókarkafli og eiga lesendur aS finna úr hvaða bók hann er og senda Vorinu róðningu fyrir 1. nóvember næstkomandi. Dregið verður úr réttum svörum og veitt bókarverðlaun. í júní var haldið sundnáms- skeið í kauptúninu. Það var úti- laug þar, en hún var samt volg. Adda átti að fara á námskeið- ið. Sjálf vildi hún ekki fara, en foreldrar hennar vildu það og voru ákveðin. Ef minnst var á það, sagði hún alltaf: — Ég fer ekki fet. Ég vil ekki læra að synda. Það var ekki af óþekkt, sem hún neitaði að fara á sundnám- skeiðið. Hún var hrædd við vatnið. Hún var hrædd við það að drukkna, ef hún færi niður í laugina. i Mörg börn í kauptúninu, sem i 1 aðeins voru fjögra eða fimm ára, 1 [ voru orðin flugsynd. j j En hún hafði ekki einu sinni j [ dýft litlu tánni niður í laugina. j [ Tvo fyrstu dagana fékkst hún , 1 ekki til að fara í laugina. En 1 1 þriðja daginn töluðu pabbi og 1 < mamma lengi við hana, áður en j | hún fór. j í þetta skipti fór hún ein. Þeg- ð ar hún kom heim, var henni mik- • ið niðri fyrir. • Idún hafði farið niður í laugina • og vaðið upp að höndum. J — Ágætt, sagði pabbi glaður. % Viku seinna var hún farin að • synda um laugina með kút á bak- • inu. Nú var hún ekki lengur hrædd • við vatnið. J Þegar námskeiðinu lauk, var 5 hún orðin sæmilega synd. § UMHUGSUNAREFNI TrúboSi spurSi eilt sinn negra, hvort hann gæti skýrt, hvers vegna Evrópu- búar væru hvítir. „Já,“ svaraSi hann. „í byrjun voru allir menn þeldökkir, en svo kom Drott- inn dag nokkurn og spurði Evrópubúa: „Hvernig liefur þú fariS meS bræSur þína í öSrum heimsálfum?“ Þá fölnaSi hann upp, og hafa þeir frá þeim tíma veriS hvítir." 142 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.