Vorið - 01.10.1974, Qupperneq 24
Jólaleikir
RÉTTARHALD.
Einn þátttakandi í leiknum er lögreglu-
stjóri, en hinir eru allir sökudólgar, á-
kærðir fyrir ýmsar yfirsjónir eða brot á
mannasiðum.
Lögreglustjóri kallar þá fyrir sig einn og
einn og þylur yfir honum sakargiftirnar,
en ákærði reynir að færa fram vörn í
máli sínu og útskýra, hvernig standi á
þessu tiltæki hans. Ef honum tekst að
finna skemmtilega skýringu, er hann
sýknaður, en annars er hann dæmdur til
að hljóta hæfilega refsingu. Best er að
fullnægja dómunum tafarlaust, svo að
það gieymist ekki.
Auðvitað er leikurinn því skemmti-
legri, sem sakargiftirnar eru broslegri.
Minni háttar afglöp gætu verið af
þessutagi:
1. Eú varst staðinn að því í gær, að
þú sast klofvega yfir þakið á Lands-
banka húsinu og söngst: „Séra Magnús
settist upp á Skjóna," svo hátt, að allir
Reykvíkingar héldu, að þetta væri merki
um yfirvofandi loftárás og flúðu í loft-
varnabyrgi, en kýrnar í Mosfellssveitinni
urðu svo hræddar, að nytin datt úr þeim.
2. Rú ert ákærður fyrir að hafa hnuplað
tarfkálfi norður á Ströndum, sundriðið
honum til Grænlands, laskað kafbát á
leiðinni með því að sparka í hann, bund-
ið tuddann svo við flugvél, sem var að
leggja af stað til Ameríku, og er hann í
óskilum þar vestra.
3. Þú sást um sexleytið í morgun í há-
rauðum nátfötum uppi á Leifsstyttunni.
Pú varst með hamar í hendi og danglaðir
honum í hausinn á Leifi og sagðist vera
að negla tunglið við hann, af því að rott-
ur hefðu stíflað vatnsæðarnar að aflstöð-
inni við Ljósafoss, og þess vegna væri
bærinn Íjóslaus.
HINDRUNARHLAUP.
Ekki er ráðlegt að leika þennan leik
annars staðar en í rúmgóðum húsakynn-
um, og alls ekki þar, sem eru vönduð
húsgögn eða eitthvað brothætt.
24
VORIÐ