Vorið - 01.10.1974, Síða 25
Tveir keppendur eru valdir og eru
látnir fara út á meðan allt er búið und-
ir hlaupið. Stólum, borðum, skemml-
um og þess háttar er stráð um gólfið,
svo að sem ógreiðast sér yfirferðar.
Síðan er keppendunum leyft að koma
inn. Þeim er leyft að athuga vel hindran-
irnar, setja vel á sig, hvar þær eru og
hvernig. Síðan er farið út með þá aftur
og bundið fyrir augu þeirra, því að þeir
eiga að hlaupa blindandi. Á meðan ver-
ið er að þessu, eru allar hindranir tekn-
ar úr veegi og raðað upp að veggjum, svo
að gólfið er autt, en farið er sem hljóð-
legast að þessu, svo að keppendur verði
ekki varir við.
Síðan eru þeir leiddir inn aftur og
keppnin byrjar. Þeir vita ekki annað
en alls staðar séu hindranir og hoppa
hvor í kapp við annan og glenna sig
yfir þær, en áhorfendur skemmta sér
dátt.
REIKNINGSÞRAUTIR.
1. Kaupmaður nokkur, sem verslaði
með vefnaðarvöru og ýmiss konar karl-
manna fatnað, fékk einu sinni ókunnan
viðskiptavin, sem kom inn í búð hans
og keypti af honum enska húfu. Húfan
kostaði kr. 4.50, en maðurinn borgaði
hana með tíu króna seðli. Nú gat kaup-
maðurinn ekki gefið til baka og fór því
út í brauðsölubúð, sem var við hlið versl-
unarinnar, og fékk seðlinum skipt. Síðan
greiddi hann manninum mismuninn, sem
hann átti að fá, og við svo búið fór
ókunni maðurinn með húfuna. En er
hann var á bak og burt, kom brauðsölu-
stúlkan óð og uppvæg og krafðist þess,
að kaupmaðurinn tæki seðilinn og end-
ur greiddi sér hann, þar eð hann væri
falsaður. Kaupmaðurinn sá, að hún
hafði rétt fyrir sér, gerði sem hún beiddi
og borgaði henni seðilinn með öðrum tíu-
krónaseðli .
Hve mikið skaðaðist kaupmaðurinn á
viðskiptum þessum?
2. Hve lengi er snigill að skríða upp 20
feta háa stöng, þegar hann skríður 5
fet upp eftir henni á hverjum degi, en
sígur niður um 4 fet á hverri nóttu?
3. Maður nokkur sagðist hafa verið
barn V4 hluta ævi sinnar, unglingur
1/5 og miðaldra maður 1/3. Síðustu 13
árin kvaðst hann telja sig gamalmenni.
Hve gamall var hann?
4. Leiðin frá Reykjavík til Keflavík-
ur er um það bil 50 km löng. Einu sinni
fór bíll frá Keflavík kl. 11,30 áleiðis til
Keflavíkur og ók með 35 km hraða á
klukkustund. Á leiðinni suður mætti
hann öðrum bíl, sem fór frá Keflavík
stundarfjórðungi síðar en hinn fór frá
Reykjavík, og ók sá bíll með 45 km
hraða að jafnaði á klukkustund.
Hvor þeirra var nær Reykjavík, er
þeir mættust?
HVERSU GAMLIRERUÞEIR
Faðirinn er átta sinnum eldri en son-
urinn. Eftir 6 ár verður hann fjórum
sinnum eldri og eftir 27 ár helmingi
eldri en sonurinn.
Hversu gamlir eru feðgarnir?
HVAÐ ERU HÆNURNAR
M A R G A R?
Bæjarkona nokkur, sem kom í heim-
sókn upp í sveit, spurði bóndakonu
VORIÐ
25