Vorið - 01.10.1974, Síða 54
dverga, og var hvor þeirra 71 sm á hæð.
Frægur er enski dvergurinn Jeffery
Hudson, sem uppi var á 17. öld. Hann
sagði sjálfur, að þegar hann var átta ára,
var hann orðinn tæpir 46 sentimetrar. Par
stóð hann í stað. þangað til hann var þrí-
tugur. Pá byrjaði hann aftur að stækka og
varð loks 115 sentimetrar á hæð. Einu
sinni hélt hertoginn af Buckingham veislu
mikla og bauð til hennar sjálfum kóngin-
um, Karli I. og drottningu hans. Þegar
veislan stóð sem hæst, skálmaði dvergur-
inn Hudson út úr brauðköku einni, sem
á borðinu var, og hneigði sig djúpt fyrir
hinum konunglegu gestum! Og við þetta
tækifæri gaf hertoginn konungi veslings
dverginn, eins og hann væri dauður hlut-
ur.
Annars var þessi litli labbakútur mesta
ævintýrahetja. Hann háði tvö einvígi,
annað við heljarstóran hana og hitt við
mann nokkurn, og hafði sigur í báðum.
Einu sinni tóku Tyrkir hann til fanga,
þegar þeir áttu í erjum við Karl kóng, eig-
anda hans. En þeir skiluðu honum heilum
á húfi aftur heim til Englands, vildu ekki
skaða „konungsgersemina.“
Pá var Tumi þumall, „hershöfðingi“,
frægur dvergur á 19. öld. Hann giftist am-
erískri konu, sem var 5 sm hærri en hann.
Annar var Richeburg nokkur, sem var 59
sm á hæð, og varð níræður að aldri. þeg-
ar styrjöldin milli Frakka og þjóðverja
geisaði 1871, fór hjúkrunarkona nokkur
með hann, útbúinn sem kornabarn í gegn-
um fylkingar óvinanna og faldi í fötum
hans mikilvæg skilaboð.
Risar eru venjulega ógreindir og ná
ekki háum aldri. Dvergar eru aftur á
54
móti oftast greindir .fjörmiklir og ná oft
háum aldri. Oft eru þeir vel vaxnir og
snotrir ,en stundum eru þeir óeðlilega höf-
uðstórir í samanburði við annan vöxt.
VORIÐ