Vorið - 01.10.1974, Page 61

Vorið - 01.10.1974, Page 61
urinn var heljarstór — villtur graðhest- ur! Alek tók höndunum utan um háls- inn á hestinum og grúfði andlitið í fax- inu. „Við erum að fara héðan, Kol- skeggur minn — við báðir saman!“ Hann talaði rólega, lágt og af miklum innileik. Svo sneri drengurinn sér við og lagði af stað niður kambinn og hest- urinn á eftir honum, en brátt hægði hann á sér og tók að prjóna og sparka. Skipstjórinn og Pat stóðu höggdofa við þessa sjón. Peir hörfuðu undan. Allir hinir voru komnir um borð í bát- inn og þóttust vel settir. Kolskeggur leit af drengnum og síðan á mennina. Alek strauk honum og róaði hann, en hesturinn hljóp ýmist út undan sér eða tók eitt skref í áttina að bátn- um. Pegar þeir voru komnir allnærri bátn- um, stansaði hesturinn alveg, og Alek stóð við síðuna á honum og hélt hend- inni í faxið. ,,Pér megið til með að taka okkur báða með, ég skil hann ekki eftir hér,“ sagði hann ákveðinn. ,,Hann er alveg ótaminn, alveg villtur Við getum alls ekki tekið hann með, — við ráðum ekki við hann,“ svaraði skipstjórinn. „Ég skal sjá um hann að öllu leyti, sjáið þið bara!“ Kolskeggur horfði fram á víkina, það var engu líkara en að hann skildi, að skipið þarna úti væri komið til að sækja þá. Drengurinn tók nú báðum höndum um hálsinn á folanum. „Hann bjargaði mér, skipstjóri. Ég get ekki skilið hann eftir!“ VORIÐ Skipstjórinn sneri sér að mönnunum í bátnum. Svo kallaði hann: „Það er ekki nokkur leið að koma hestinum um borð.“ Svo hikaði hann andartak. Hvernig ætlar þú að koma honum um borð?“ Skipstjórinn benti á skipið. „Hann getur synt,“ svaraði Alek. Skipstjórinn talaði nú lengi við menn sína og þegar hann sneri sér að drengn- um aftur, var hann all-þungbrýnn og röddin hörð. „Jæja, drengur minn!“, sagði hann. „Pú skalt fá að ráða — en þú verður að koma hestinum um borð sjálfur!“ Hjartað barðist í brjósti drengsins og hann starði á hestinn. „Komdu þá, Kolskeggur!“ Alek sté nú eitt skref á- fram, Kolskeggur hikaði, en fylgdi hon- um svo eftir. Þannig fikraði drengurinn sig áfram skref fyrir skref. Þegar þeir voru alveg að nálgast mennina, reis sá svarti enn upp á afturfæturna og titraði allur. „Farið þér bara upp í bátinn, skip- stjóri!“ hrópaði Alek. „Þér skuluð vera fram í, svo fer ég upp í síðastur, um leið og þið eruð búnir að snúa skutn- um að landi.“ Skipstjórinn skipaði mönnunum að leggja frá og snúa bátn- um. Svo biðu þeir svona á floti. Alek sneri sér nú aftur að hestinum. „Þetta er eina tækifærið sem við fáum, Kolskeggur minn. Nú máttu ekki bregð- ast mér!“ Hesturinn titraði. Að vísu hafði hann sýnt það margsinnis, að hann bar fullt traust til drengsins, en eðlis- ávísun hans sagði honum að varast ó- kunnu mennina. Þegar Alek var búinn að lokka hestinn með sér alveg að flæð- 61

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.