Vorið - 01.10.1974, Síða 74

Vorið - 01.10.1974, Síða 74
HÉR FER Á EFTIR LÍTIL JÓLASAGA, SEM EINN LES- ANDI VORSINS SENDI BLAÐINU FYRIR 27 ÁRUM EÐA ÁRIÐ 1947. JÓLIN Það var farið að líða að jólum. Syst- kinin í Holti hlökkuðu mjög mikið til. F*au höfðu hjálpað foreldrum sínum þá um daginn og feðgarnir voru að koma frá kindunum. Hans litli leit hvað eftir annað upp í himininn. — Ósköp er himininn fallegur núna. hugsaði hann. En hvers vegna var hann svona fallegur núna? ÞaÞð vissi hann ekki. Aðfangadagur jóla rann upp. Það var frostlítið og dálítill snjór. Börnin biðu óþreyjufull eftir að jólahelg- in byrjaði. Loks var klukkan orðin sex. Börnin gengu inn í stofuna. Hún var fátækleg, en þó hreinleg. Lítið jólatré stóð á litlu borði í einu horninu. Páll bóndi kveikti á kertunum á jólatrénu. Þau gengu kringum það og sungu sálm. Þá var barið að dyrum. Jóna litla fór til dyra. Úti stóð maður, hann hélt á körfu á handleggnum. 74 „Komdu sæl, stúlka litla,“ sagði hann. „Færðu föður þínum þetta. Gleðileg jól!“ Að svo mæltu hvarf hann út í nátt- myrkrið. Jóna hljóp inn. „Lítið þið á,“ sagði hún „Það kom maður og sagði mér að fá þér þetta.“ Hún rétti föður sínum körfuna. Karfan var nú opnuð. Efst kom kjóll handa Önnu, hálsbindi handa Páli bónda og myndabækur, bílar og sitthvað smávegis handa börnunum. Allri fjölskyldunni bar saman um, að þetta hefðu verið skemmtilegustu jól, sem þau hefðu lifað. En aldrei vissi neinn hver með körfuna kom. En krakkarnir sögðu, að það hlyti að hafa verið Jesús. Brynhildur Lilja Bjarnadóttir (11 ára). VORIÐ

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.