Heima er bezt - 01.03.1962, Page 39

Heima er bezt - 01.03.1962, Page 39
BARNAGETRAUN ÞAÐ ER ótrúlegt að þið hafið látið hann Villa snúa á ykkur, krakkar mínir, og ef þið hafið ekki kunnað öll lcvæðin sem vísur voru birtar úr í síðasta hefti, þá eruð þið sjálfsagt búin að læra þau núna. En Villi hefur heldur ekki verið iðjulaus, því nú er hann búinn að læra 4 kvæði í viðbót og er nú heldur montinn. Visur úr þessum kvæðum eru letraðar á stóra spjaldið, sem Villi stendur hjá, og nú eigið þið, eins og síðast, að segja til um eftir hvaða höfunda vísurnar eru og úr hvaða kvæðum þær eru teknar. Ef þið kunnið ekki kvæðin, þá ættuð þið að sýna pabba og mömmu hvað þið getið verið dugleg og læra þau utanbókar, eitt og eitt í einu. Svörin eigið þið að senda til „Heima er bezt“, pósthólf 45, Akureyri, og þurfa þau að hafa bor- izt afgreiðslunni fyrir 30. apríl n. k. Berist mörg rétt svör, verða nöfn sigurvegara dregin út. Þið munið að það er til mikils að vinna, því 1. verðlaunin eru öll sex bindin af Þjóðsögum Jóns Arnasonar, bundin í fallegt band. Verðmæti þessara glæsilegu 1. verðlauna er kr. 1980.00 en auk þess eru 10 aukaverðlaun, og eru það allt úrvals barna- og unglingabækur. Það getur borgað sig vel að vera með, því ómögulegt er að vita, nema það verði einmitt þú, lesandi góður, sem verður svo heppinn að hreppa verðlaunin. Vísa nr. S: Mjök erum tregt tungu at hræra eða loptvætt Ijóðpundara; esa nú vænligt af Viðris þýfi né hógdrægt ór hugarfylgsni. Vísa nr. 6: Sú kemur tíð að sárin foldar gróa, svcitirnar fyllast, akrar hylja móa, brauð veitir sonuin intiðunnoldin frjóa, ittenningin vex í lundi nýrra skóga. Vísa nr. 7: „Ég sigli’ ei skýin, ég sigli sjá!“ svaraði kappinn og hló; „ég trúi á Guð, en grýlur ei, og gleð mig við reiðan sjó.“ Vísa nr. 8: Hlíð, þér unt haga hlýr æ blási andi, döggvi vordaga dögg þig sífrjóvgandi! Um þig aldrei na-ði, af þér svo að kali, vetur vindsvali. Heima er bezt 107

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.