Heima er bezt - 01.03.1962, Síða 40

Heima er bezt - 01.03.1962, Síða 40
46. Þetta bragð mitt hafði tilætlaðan árangur. Mér tókst að láta karlinn fá annað að hugsa um en gamla fangann sinn. Og eftir örskamma stund sá ég hann koma út í kofadyrnar. 47. Ég skauzt í skjól og faldi mig á bak við runna skammt frá aftanverðu húsinu, áður en karlinn nálgaðist með digurt prik í hendi. Hann glápir í allar áttir til að gá að friðrofanum. 48. Vinstra megin við húsið er grasi- vaxinn geymsluhóll fyrir jarðarávexti. Þangað stefnir nú karlinn og lieldur ber- sýnilega, að ég hafi falið mig þar. Hann opnar hurðina og smýgur inn. 49. Nú dettur mér nokkuð í hug: Án þess að hugsa um hættuna, hleyp ég yfir að jarðhúsinu, skelli aftur hurðinni og tvílæsi henni síðan og flýti mér svo á burt þaðan. 50. Meðan karlinn er í jarðhúsinu og hamast við að lemja á hurðina með alls konar bareflum, flýti ég mér yfir að bruggunarhúsinu til þess að losa gamla manninn úr böndunum. 51. „Þakka þér kærlega fyrir,“ tautar gamli maðurinn, þegar ég leysi af hon- um böndin. „En þú leggur þig í mikla hættu. Fúsi flakkari er ekki lamb að leika við. Nái hann þér, fer illa!" 52. „Það er engin hætta á því,“ segi ég hlæjandi. „Fúsi flakkari er nú í ör- uggri geymslu. Ég lokaði hann inni í jarðhýsinu. Komclu nú, vinur... Við verðum að flýta okkur að fela okkur, áður en..." 53. Ég er ekki lengra kominn, þegar við heyrum hávaða og gauragang hand- an frá jarðhúsinu. Auðheyrt er, hvað nú er á ferðum. Fúsi flakkari hefur brotið upp skrána og opnað dyrnar. Og nú heyrum við að hann kemur hlaupandi. 54. „Við fáum ekki tíma til að fela okkur fyrir utan," hvísla ég. „En við verðuin auðvitað að fela okkur hérna inni. En híðum nú annars við: Ég fel mig, en þú læzt ennþá vera I böndun- um... “ 108 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.