Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1963, Page 8

Æskan - 01.11.1963, Page 8
 Sjálf jólahelgin hófst með því, að lesinn var jólalesturinn og sálmur sunginn, bæði f>'r'r og eftir. Síðan var sezt að snæðingi. Að mál" tíðinni Iokinni bjuggust þeir til aftansöngs » kirkjustaðnum, sem þangað ætiuðu. Hinir sátu heima og hvíldu sig eftir erfiði dagsins, lasU í guðsorðabókum, rauluðu eftirlætissálmana sína upp úr sálmabókinni, töluðu hljóðl«Sa saman og sýndu hver öðrum jólagjafirnar- Börnin kveiktu á kertunum sínum, horfðu inn í ljósið og sáu guðs dýrð í litla loganum* Ijósum prýtt og óvenju mikið sungið. Presturinn var ung- ur og ljúfmannlegur og hafði fagra rödd. Ræðan var ör- stutt, en söngurinn margbreyttari en venja var til og allt með einhverjum unaðslegum hátíðablæ í fallegu kirkjunni hans afa á Þverá. — Aftansöngur mun nú tíðk- ast um allt land, og vill fólkið áreiðanlega ekki af hon- um sjá í annað sinn. Aldrei var spilað á spil, né aðrar skemmtanir um hönd hafðar á jólanóttina. Þótti það hin mesta ósvinna, ef út af þessu var brugðið. Jólanóttin var hrein og stillt eins og stjörnur himinsins. Á hana mátti ekki falla hinn minnsti skuggi. Hún var vin í eyðimörku vetrarmyrkurs og kulda — skjól hins minnsta smælingja, jafnt sem hins voldugasta höfðingja — háheilög stund, sem lét drauminn um guðsríki á jörðu rætast ár hvert — í nokkrar klukku- stundir. Á hverjum bæ var Ijós látið loga yfir sofandi fólkinu, þessa einu nótt. Jóladagurinn hófst með því, að húsfreyj- an og eldhússtúlkan færðu fólkinu kaffi og jólabakstur í rúmið. Síðan var klæðzt við jólaljós. Karlmenn fóru til gegninga og konur til mjalta. Er því var lokið bjugg- ust menn á ný í jólaskartið. Sumir fóru til kirkju, aðrir sátu heima og hlýddu húslestri. Þegar kirkjufólkið var komið heim aftur, var miðdags- verður borinn inn. Þótti börnum og unglingum ekki lítið til koma, að mega færa fólkinu hrókaða diskana, með laufabrauðs-hlaðanum ofan á. Svo var borðaður rauð- grautur með rjóma eða „vínsúpa" á eftir. Vínsúpa var venjuleg sætsúpa með sagógrjónum, sveskjum og rúsín- um og saft út í. Var hún aðeins höfð á hátíðum og 1 veizlum. Eftir miðdegismatinn var oftast rólegt. Karlmen11 fengu sér blund í rúmi sínu, kvenfólkið skrafaði safflan- eða las í sálmabókum, börnin léku sér liljóðlega. I>al’ sem stutt var á milli bæja, brugðu menn sér stundum í of í heimsókn, en töfðu sjaldan lengi. Jóladagurinn var lieilagur til hversdagslegra skemmtana. En á annan jólum var glaumur og gleði, spilað á spil, dansað, þar sem stofur voru — og leikið á harmoniku og fiðlu — Iml3 ast saman á bæjunum og vakað fram á nótt. Jólin voru á enda það árið. Hversdagsannir biðu allra. Og það val svo hressandi að fá sér einn fjörugan dans og syngja ellt lag áður en virkir dagar komu með starf og strit á ný* Viku eftir jólin kom svo áramótahátíðin. En ekki va jafn rnikill helgiblær yfir henni sem jólunum. Þó var ara mótastundin bæði heilög og háalvarleg. Þá söng allt fð^ ið „Nú árið er liðið í aldanna skaut“. Á eftir tókust allir í hendur, þökkuðu hver öðrum fyrir gamla árið og <)S^ uðu gleðilegs nýárs. Á gamlárskvöld og nýársdag voru messur og inat<l1 veitingar svipaðar og um jólin. — Álfadansar og brenn11 voru stundum á gamlárskvöld, en þó oftar á Þrettán anum. Sá dagur var lokadagur jólahelginnar í fornLl11 sið, og þó að ekki væru lengur nema þrír fyrstu dagarnir haldnir helgir, þá var Þrettándans minnzt U1^ skemmtisamkomum, brennum og álfadansi. En ekki ver ur því nánar lýst í þessari stuttu grein. „Jólin eru Jn'O1111 — og lifið þið vel!“

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.