Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1963, Side 37

Æskan - 01.11.1963, Side 37
Að þessu sinni birtast hér í blaðinu tvær myndir frá jólafundum í barnastúkunni SAKLEYSIÐ nr. 3 á Akur- eyri. Þetta eru fyrstu jólafunda-myndirnar, sem mér hafa k°rizt, og er mér því mikil ánægja að birta þær. Gæzlu- 'íiaður Sakleysis er hinn kunni áhugamaður, Jón Krist- Insson, rakarameistari. í bréfi, sem gæzlumaður sendi mér í fyrra vetur, drep- lIr hann á viss atriði, sem ég vil gjarna að komi hér ^ram, öðrum til athugunar. Segir þar meðal annars: >»Við skiptum félögum stúkunnar í flokka og starfa nú Sex slíkir, sem keppa sín á milli. Starfstímabilinu er skipt 1 Gennt og lýkur því fyrra nú á næsta fundi. Keppnin er tvenns konar: Fyrir fundarsókn í hverri deild og fyrir Vdagafjölgun. í hverri deild eru milli tíu og tuttugu íélagar, og bezta deildin í vetur hefur t. d. 100% mæt- lngu. Að keppni lokinni fær svo hver flokksmaður sigur- ^okksins og allir þeir, sem komið hafa með nýja félaga, smá verðlaun. Vinsælustu verðlaunin eru aðgöngumiði í Borgarbíó, sem bíóið hefur gefið. Hver keppandi sigur- flokksins er kallaður upp, til að taka við verðlaunum sínum, og fær þá um leið smá einkunn. Hafi hann mætt á öllum fundum keppnistímabilsins, fær hann nokkur þakkarorð og þá jafnframt á það bent, hve mikilvægt það sé að gera skyldu sína. Hafi hann aftur á móti vantað á einn eða fleiri fundi, fær hann ofurlitla áminningu þess efnis, að hans hlutur hafi ekki verið heill og liann livattur til að gera betur framvegis. Jólafundirnir okkar eru alltaf með dálítið sérstöku sniði. Á meðfylgjandi myndum er hægt að sjá ljósakross- inn, sem er tákn jólafundarins. í sambandi við tendrun hans fer fram athöfn, sem tengd er jólunum og boðskap þeirra.“ Við sendum barnastúkunni Sakleysið nr. 3 beztu þakkir og framtíðaróskir. Höldum öll um kærleikann í verkum vorum vörð, svo veröld þjóni konunginum mesta. Þá stígur Friður konungur eitt skref fram og mælir: FRlÐUR: sem vekur ófrið, vekur öldu, sem ekki verður stöðvuð án sársauka. FrELSI: sem glatar frelsinu, veit þá fyrst, flve dýrmæta eign hann hefur átt. ^ÆRleikuR: ^á, sem engum sýnir kærleika, er sr»auður, þótt liann eigi gimsteina °g gull. Nú dansa dísirnar hægan og hátíð- legan dans um sviðið í kringum kon- ungana, en á meðan er leikið á bak við á flygel eða orgel: „Friðarins Guð er hæsta hugsjón mín“ o. s. frv. Að lokum staðnæmast þrjár og þrjár hjá hverjum konungi fyrir sig og mynda eins konar pýramída með uppréttum höndum. FRIÐARDÍSIRNAR mæla eða syngja: — Friður fyrir alla. Friður um eyjuna hvítra mjalla. FRELSISDÍSIRNAR: — Frelsi fyrir alla. Frelsi um eyjuna hvítra mjalla. KÆRLEIKSDÍSIRNAR: — Kærleik fyrir alla. Kærleik um eyjuna hvítra mjalla. Þá stígur Friður konungur enn eitt fet fram, lyftir veldissprota sínum og mælir hátt: FRIÐUR. Þá stígur fram konungurinn Frelsi, lyftir veldistákni sínu og niælir hátt: FRELSI. Síðastur stígur fram konungurinn Kærleikur, lyftir veldistákni sínu og rnælir: KÆRLEIKUR. Marglit ljós eru látin leika um sviðið, en bak við er sungið fyrsta er- indið af „Faðir andanna". Þegar því er lokið, fellur tjaldið. Ef sýningin er kölluð fram aftur, er rétt, að konungarnir mæli aftur orðin: Friður, frelsi, kærleikur. 317

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.