Æskan - 01.11.1963, Qupperneq 32
1914
1964
*
Skrifstofuhús Eimskipafélags íslands í
Reykjavík.
víðfeðm og hefur verið svo mikilsverður þáttur í atvinnulífi og
atiiafnalifi þjóðarinnar, að nœrri livert mannsbarn i landinu
hefur sína sögu að segja af viðskiptum við fyrirtækið. Þeir, sem
ferðast hafa með skipum félagsins, kunna frá því að segja, hvern-
ig þeim hafi geðjast vistin um borð, framkoma skipverja, um-
gengni og viðurgerningur allur, þeir, sem flutt hafa varning sinn
með skipum þess, geta sagt frá því, hvernig þcim hafi reynzt
afgreiðsla og meðferð vöru sinnar, liversu mikla lipurð félagið
hafi sýnt um fyrirgreiðslu þeirra og svo mætti iengi telja. Þetta
er sá þáttur sögunnar, sem þjóðin þekkir hezt, það er sjálf reynsla
hennar af félaginu. Þessi veigamikli þáttur og sú staðreynd, að
fclagið hefur fleytt þjóðinni heillavænlega yfir tvö tímabil heims-
ófriða, liefur skilið eftir spor einlægrar velvildar í hug og hjarta
óteljandi velunnara og vina félagsins um land allt, ekki aðeins
liinna mörgu hluthafa í félaginu, heldur mikils fjölda annarra
manna, sem hafa reynt það að góðu og sjálfir reynzt því vel með
því að beina til þess viðskiptum sínum fremur en til lceppinauta
þess að öðru jöfnu. Og öllum arðinum af starfsemi sinni hefur
Eimskipafélagið skilað aftur til ])jóðarinnar með góðum ávexti
með því að byggja upp fríðasta skipastól, sem er í þjónustu allr-
ar þjóðarinnar.
Því verður ekki neitað, að við hefur borið, að ekki hafi allir
einstaklingar verið jafn ánægðir um stundarsakir með cinliverjar
athafnir félagsins, enginn gerir svo öllum liki og ekki guð í
himnaríki, eins og máltækið segir. Stöku sinnum hafa óánægju-
raddir látið til sín heyra og geta slikar raddir, ef sprottnar eru
af velvild og vilja til þess að bæta það sem miður hefur þótt fara,
oft verið félagsstjórn og forstjóra til nokkurs ávinnings. Aðrar
raddir, sem framkallaðar eru af hvötum óvildar, gera skaða einn
og inestan þeim sem óvildina elur. Hinar miklu og ótvíræðu vin-
sældir, sem félagið hefur alla tíð átt að fagna, eru um leið skýi-
asta sönnun þess, að það hafi náð því að uppfylla þær vonir, sem
við það voru tengdar, er það var stofnað.
Þó að úrlausn hinna stærri mála heyri að jafnaði undir úrskurð
og álit félagsstjórnarinnar, þá liggur hins vegar hin daglegn
stjórn og umsjón með rekstri félagsins fyrst og fremst í hendi
l'orstjórans. Hann kemur fram fyrir félagsins hönd gagnvart öðr-
um í öllum þeim málum, sem snerta venjuleg viðskipti þess utan
lands og innan, svo og útgerð slíka, sem félagið fæst við. Getur
þvi miklu ráðið um gang mála, að í forstjórasæti sitji traustur og
víðsýnn atorkumaður.
Eins og áður er sagt, var Emil Nielsen með í ráðum um stofn-
un Eimskipafélagsins allt frá byrjun og var i-áðinn fyrsti frain-
kvæmdastjóri þess. Rækti hann starf sitt með hinni mestu prýð>
og gat sér almennt lof fyrir lipurð við viðskiptamenn félagsins
og lilaut traust allra fyrir ráðdeild og hyggindi í stjórn. Hinn 1-
júní 1930 tók Guðmundur Vilhjálmsson við framkvæmdastjóra-
starfinu og stýrði málum félagsins til 1. júní 1962, eða í 32 ár. Er
mönnum í fersku minni af hvílíkri alúð og samvizkusemi Guð-
mundur Vilhjálmsson rækti starf sitt og naut hann mikils trausts
og vinsælda í viðskiptum sínum við alla. Hinn 1. júní 1962 tók
núverandi forstjóri, Óttarr Möller, við starfinu. Hann hafði starf'
að lijá Eimskipafélaginu um alllangt árabil, bæði liér heima og *
New York og áunnið sér traust og viðurkenningu allra, sem til
þekktu, fyrir dugnað og stjórnsemi, Gefa störf hans góð fyrir'
heit um að málefnum félagsins verði vel borgið undir forystu hans-
„Lagarfoss" er eitt af nýjustu skipum
Eimskipafélags íslands.