Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1963, Page 52

Æskan - 01.11.1963, Page 52
ÆSKAN Jólasálimur Eítir JÓN EIRÍKSSON frá Högnastöðum. Þegar skúra og skuggaélin svörtu skerða gleði og vcikja manna hjörtu, kemur Jesús jólabarnið bliða, burtu hrckur alla sorg og kvíða. Hann kemur til að lœkna manna meinin að mýlija og grœða sorg og harma kveinin. Hann þerrar tár af þreyttum grátnum hvarmi og þrýstir oss að sínum náðarbarmi. Við skiljum ekki skipting gleði og nauða við skiljum ekki tilgang lifs og dauða við skiljum ekki skaþaráðin hörðu við skiljum ekki lifið hér á jörðu. Þvi er bezt að treysta, vona, trúa, til hans öllum bænum okkar snúa, þó að sorg og þrautir okkur beygi, við þekkjum ekki drottins huldu vegi. Barnið mitt ef líður þungar þrautir, en þræddir áður fagrar sólarbrautir. Nú kemur hann með lifsins Ijósið bjarta, sem lýsir gegnum neeturhúmið svarta. Eg itrýp i auðmýkt, klökkur bið af lijarta, þér Kristur lýsi jólastjarnan bjarta, og láti geisla af Ijósi sinu skina að lífga og verma unga sálu þína. Láttu, drottinn, Ijósið trúar bjarta lýsa skœrt i hverju döpru hjarta, láttu um eilifð aldrei, aldrei dvina ást og trú á jólagleði þína. Himna droltinn hjálþin eina, sanna, i hœðir til þín leita beenir rrianna. Veittu hjálp þeim sjúku, seerðu, meeddu, sálarstrið og likamsmeinin greeddu. „Hvað eru skýin, mamma?“ „Þau eru vatn, sem safnast saman uppi í loftinu. Þegar heitt er, gufar það upp frá vötnunum á jörðinni, eins og ég sýndi þér einu sinni og þér þótti svo hlægilega skrít- ið. Þegar svo kólnar uppi í loftinu, dettur þetta vatn aftur niður á jörðina til okkar og þá er það kallað rigning.“ „Er það mikið vatn, sem er uppi í loft- inu. Er það meira en vatnið í læknum?“ „Já, ég held nú það. En það fellur nið' ur á stórt svæði og svo sígur það niður i „Þetta er ljóta andstyggðin! Getur þu ekki stangað skýin burtu, mamma mín?‘ „Nei, það get ég áreiðanlega ekki,“ svaf' aði mamman. „En getur hann pabbi minn, hrúturinn með stóru hornin, stangað þau burtu?“ „Nei, það getur hann sannarlega ekki- jörðina KHKBKHKBKHKHKHKHKHKBKHKHKBK*HKHKBKBKHKBKBKHKHKHKHKHKHKBKHKHKBKHKBKHKBKBKHKBKHKHKbKHKH*£? 332

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.