Æskan - 01.11.1963, Page 70
■
Hverniý
við
unnum:
Fyrstur til Monte Carlo er takmarkið, sem allir keppendurnir
keppa að. En það er ekki auðvelt að sigra í þessari mestu bíla-
keppni heimssögunnar. Fyrsta keppnin fór fram árið 1911. Frá ár-
inu 1924 hefur keppnin verið árlegur viðburður, að undanteknunr
árunum 1940 til 1948.
Keppnin í janúar 1963 var sú 31. í röðinni. Okumenn voru í
upphafi 296 en aðeins 102 komust á áfangastað. í þetta sinn sigraði
SAAB í annað sinn í röð en ökumenn voru tveir, þeir Gunnar
Hággbom og Erik Carlsson. Eftirfarandi stendur skrifað í dagbók,
sem Gunnar hélt á leiðinni. „Óp mikið vakti mig einn morguninn.
Þetta var Erik. Og þegar ég settist upp og leit út úr bílnum, þá
skildi ég ástæðuna fyrir fögnuði hans. Fjöllin voru snævi þakin.
Og við vissum, hvað þetta þýddi. Saabinn okkar var ekki nógu
hraðskreiður til að vinna stóru bílana á beinu brautunum. En
við vissum, Itvers megnugur Saabinn okkar er á hálum og snævi
þöktum fjallavegum eins og þeim, sem Alpafjöllin höfðu vfir að
ráða. Og við vissum, að enginn annar bíll stóð okkar á sporði
hvað snerti snerpu og stöðugleika á slíkum vegum. Og Saabinn
okkar vann.“ Ef þið hafið áhuga á að fá mynd af SAAB, þá skrif-
ið til umboðsins.
Sveínn Bjömsson & Co
• a BOX 1386 - REYKJAVÍK-
+-«
350