Æskan

Volume

Æskan - 01.07.1968, Page 12

Æskan - 01.07.1968, Page 12
10. KAFLI Spennandi keppni. Nokkur tími var liðinn frá því að Gulur litli lék svo ei'tirminnilega á kisu. Ýmislegt hafði gerzt á þeim tíma, en það varð Gul litla ekkert sérstaklega minnisstætt, nema það, þegar hann sá unga á aldur við sig. Það voru 11 hænuungar, sem voru að labba með mömmu sinni, þegar Toppu gömlu og Gul litla bar að. Fyrst hafði Gulur litli orðið undrandi. Hann hafði beðið mömmu sína að nema staðar. Þarna höfðu þau svo staðið góða stund, meðan Gulur litli virti ungahóp- inn fyrir sér. Ungarnir voru að tala við mömmu sína um hitt og annað. Þeir töluðu stundum allir í einu, svo að ómögulegt var að svara þeim öllum. Mamma þeirra reyndi þó það sem hún gat að svara þeim. Hópurinn fór skammt þar frá, sem Toppa gamla og Gulur litli stóðu. Allt í einu fann Gulur litli, að hann var líkt þvi að vera hræddur, en hann var það samt ekki. Hann bara þorði ekki að verða á vegi svona margra jafnaldra sinna. Hann hvíslaði því að mömmu sinni, en hún sagði, að þetta gæti lagazt fljótlega, því að hann væri bara feiminn, eins og hún kallaði það. Hún hafði varla sleppt orðinu, þegar hún byrjaði að gagga og ávarpa hænuna með 11 ungana. „Hann er fallegur, hópurinn þinn, blessuð mín,“ sagði hún. Ungamamman leit upp og svaraði: „Já, þetta er dásamlegur liópur. Það eru 8 hænur og þrír hanar. Þetta eru þeir beztu ungar, sem ég hef nokkru einni eignazt." „Jæja, það var gaman að heyra. Var ekkert fúlegg hjá þér?" „Það var bara eitt. En, hvernig er það tneð þig, góða mín, kom ekki nema þessi eini ungi út hjá þér? Voru hitt eintóm fúlegg?" Það komu tár í augun á Toppu gömlu, þegar hún svaraði: „Ónei, blessuð mín. Blessaðir ungarnir mínir voru komnir að því að koma út úr eggjunum, þegar skelfilegt slys kom fyrir." Hér þagnaði Toppa gamla í frásögninni. En svo herti hún sig upp og sagði frá þessu alvarlega slysi. Mamma 11 unganna lét samúð sína og undrun í ljós og bauð Toppu gömlu að koma eins oft til sín, eins og hún vildi. Toppa þáði það með þökkum, því að hún var sannfærð um, að feimnin færi fljótlega af Gul litla og þá myndi hann langa til að leika sér við jafnaldra sína. Það fór líka eins og hana grunaði. Þegar hún fór næst með Gul litla til 11 unga mömmunnar, snaraðist hann að einum hananum og sagði: „Eigum við að leika okkur saman?“ „Já, við skulum gera það. Við skulum vera vinir,“ svaraði hinn unginn. „Hvað heitirðu?" spurði Gulur litli. „Mamma kallar mig Lubbakoll. Ég heiti víst ekkert annað. En hvað heitir þú?“ „Ég heiti Gulur, en er alltaf kallaður Gulur litli. Það gerir ekkert til. Ég er alltaf að stækka. Sjáðu, dúnninn er að fara af mér. Ég er að fá almennilegt fiður. Svo er byrjað að koma stél á mig,“ sagði Gulur litli og dillaði litlum fjöðrum, sem mynduðu ósköp lítið stél á honum. Þeir voru orðnir ágætis vinir, Gulur litli og Lubba- kollur. Hinir ungarnir voru líka íarnir að þekkja Gul litla talsvert. Svo var það á yndislegum morgni, þegar Toppa gamla og Gulur litli komu í heimsókn til 11 unganna og itiömmu þeirra, að ungarnir sögðu við Gul litla, að nú hefði verið ákveðið að halda keppni, sem hann yrði auðvitað að taka þátt í. Fyrst áttu hanarnir að keppa í kapphlaupi. Svo átti að vera boðhlaup þannig, að Gul- ur litli og Lubbakollur kepptu á móti hinum hönunurn- Svo átti að keppa í fiðrildaveiði. Af því að mikil dögg hafði verið þessa nótt, væri mikið af fiðrildum á flögri- Loks átti svo að vera hoppkeppni. Gulur litli var undir eins til í að keppa. Tvær syst- urnar áttu að dæma í keppninni. Þær voru látnar standa uppi á hárri þúfu, þar sem vel sást til keppendanna- Hinar systurnar báru smásteina í nefinu og settu í litlar hrúgur, en það voru mörkin. Svo var allt tilbúið. Toppa gamla og hin mamman urðu auðvitað að vera viðstadd- ar og sjá um, að allt færi vel fram. Þær stilltu sér upp hlið við hlið fyrir miðju hlaupabrautarinnar, svo að þ#1 hefðu góða yfirsýn yfir allt svæðið í einu. Þær skemmtn sér vel við þetta og fylgdust með undirbúningnum mikilli athygli. Loks var allt tilbúið. Gulur litli og hinir hanarnn stilltu sér upp við annan enda hlaupabrautarinnar. I,e11 voru auðsjáanlega verulega spenntir. Systurnar tvær, sem voru dómarar, komu sér saman um, að önnur skyldi gefa byrjunarmerki með því a^ gefa frá sér snöggt tíst, sem þýddi: Af stað! Hin systirm átti á meðan að gæta þess, að allir hanarnir legðu jafn1 af stað, enginn áður en merkið væri gefið. Gulur li^1 var svo spenntur, að hann gat varla stillt sig um a^ stökkva af stað, áður en merkið var gefið. Hann hafð1

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.