Æskan - 01.07.1968, Blaðsíða 55
Sumarfrí
I>að gota margir tekið þátt í
þessum leik. Hver þátttakandi
hefur tölu eða hnapp. Teningn-
uin er kastað, og síðan flytur
sá, 8em á leik, töluna sína um
jafnmarga reiti og punktarnir
eru margir, sein upp koma á
teningnum. Sá, sem kemst
fyrstur í mark, hefur unnið
leikinn.
Sumarleyfin eru að byrja,
og allir eru að flýta sér út í
guðsgræna náttúruna.
3. Það er mikil biðröð við ís-
verzlunina. Þú bíður 1 umferð.
10. Það er nóg að gera í sum-
arbúðunum, og þú hjálpar
mömmu þinni og afhýðir kart-
öflur. Fyrir það færð þú að
flytja þig á reit 14.
15. Þér hefur orðið á sú skyssa
að tjalda á akri. Bóndinn er
mjög reiður og skipar þér að
hypja þig í burtu með tjaldið.
Fyrir bragðið verður þú að
bíða með að færa þig, þar til
upp koma hjá þér 3 eða 4 á
teningnum.
21. Litla stúlkan fór heldur
langt út og var hætt komin.
Þú bjargar henni og færð að
launum aukakast.
26. Þú ert of ákafur við veið-
ina og gætir ekki að liér og
fellur í ána. Því miður. Þú verð-
ur að byrja á nýjan leik á nr. 1.
31. Þú hjálpar pabba þínum að
mála sumarbústaðinn, að laun-
um máttu flytja þig á 34.
36. Hundurinn þinn er illa van-
inn og hefur nú ráðizt á karl
nokkurn undarlegan, svo að þú
verður að bíða með að færa
þig þar til upp koma 1 eða 2
á teningnum.
Gleðilegt sumarfrí!
267