Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1968, Qupperneq 26

Æskan - 01.07.1968, Qupperneq 26
MALFRÆÐI — skemmtilegasta námsgreinin mín! Þið munið eftir stiganum, sem við bjuggum til úr kubbum. Þá vorum við að búa okkur undir stigbreytingu lýsingarorða. Skoðið nú myndina. íbúarnir í þessu húsi hjálpa okkur að skilja þetta betur. Kisan fer í kjallar- ann í rannsóknarleiðangur. Hún mjálmar: „En hvað þetta er djúpt.“ Fyrsta trappan heitir frumstig, sama hvort kisan fer niður í kjallarann eða upp á loft. Síðan heldur hún áfram og nú heyrist í henni: „Þetta er samt dýpra." Þessa tröppu köllum við miðstig, af því að hún er í miðjunni. Þegar kisan er komin alla leið, segir hún: „Þetta er dýpst.“ Nú er talað um efsta stig, og ykkur kann að finnast það furðulegt þarna niðri í kjallaranum! Þess vegna skulum við flýta okkur upp aftur og halda í handriðið! Þið stynjið, en nú er ykkur óhætt! Til okkar berst hávaði ofan af háaloftinu. Unginn segir: „Ég er svo lipur. Haninn galar og músin tístir. Hún situr við sinn keip: „Ég er langt um liprari." En haninn lætur ekki sitt eftir liggja: „Ég er samt liprastur." Reynið nú að þekkja frumstig, miðstig og efsta stig og skrifið í réttri röð í stigana. Miðstig endar á -ari, -ri og -rri. Efsta stig endar á -astur og -stur. Dæmi: svalur, skyn- samari, breiðastur, fegnari, hyggnari, mjórri, sljór, gleggst- ur, nýjastur, hlýrri, gagnsærri, smæstur, mýkstur. Búið til fleiri stiga á pappírsörk. Svar á bls. 265. María Eiríksdóttir. . Hér sést hiuti tjaldbúðanna. komast á leiðarenda með aðstoð áttavita og landakorts, og um leið er þetta keppni í þreki og úthaldi, lipurð og úrræðagæðum. Þegar börnin snúa aftur síðdegis, bíður þeirra væ11 máltíð. Eftir matinn lætur lúðurjreytarinn til sín heyia’ og nú er blásið til „hvíldarstundar", sem raunar er ekk< oft notuð til hvíldar. Um kvöldið er stol’nað til kepp111 1 fótbolta, blaki, körfubolta og borðtennis, en þeir, sem meiri hug hafa á öðru, svo sem ílugmódelsmíði, skák og spilum, náttúrufræði o. fl„ snúa sér að sínum áhuga' efnum. Bókavinir fara í tjaldbúðabókasafnið, og þanmg líður tíminn fram á kvöldið. Stundum koma gestir í heimsókn-. Það eru oft hetju1 úr stríðinu, rithöfundar, leikarar og fulltrúar frá verk- smiðjum og iðjuverum. Þeir koma að ungherjavarðeldu1' um, og nú eru sagðar sögur og sungnir fjörugir ungher]a' söngvar langt fram á kvöld. Dagarnir 24 í búðunum líða fljótt, en börnin minnast þeirra lengi, daganna, Jregar þau dvöldust í litla ung herjalýðveldinu, sem kallað er ungherjabúðir. 238

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.