Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1968, Qupperneq 32

Æskan - 01.07.1968, Qupperneq 32
Sigurvegarinn í langstökki á Ólympíuleik- unum í Róm 1960, Ralph Boston, verður meðal þátttakenda í sumar. ympíuráð og var Coubertin kosinn fyrsti forseti þess. Á þessari ráðstefnu var ákveðið að halda fyrstu alþjóð- legu Ólympíuleikana í Grikklandi ár- ið 1896. Síðan hafa leikarnir verið lialdnir fjórða hvert ár með þeirn undantekn- ingum, að árin 1916, 1940 og 1944 féllu þeir niður vegna striðs í heim- inum. Pierre de Coubertin hefur verið nefndur íaðir nútíma Ólymjsíuleika. Hann dó árið 1937, og var hjarta hans grafið í Ólympíu, fæðingarstað hinna fornu leika. Markmið hans með endurreisn Ól- ympíuleikanna var hið sama og Hell- ena forðum, er þeir stofnuðu þá, að efla íþróttir og listir, en ekki síður að skapa einingu þjóðanna og frið um allan heim. Ólympíuleikar nútímans eru haldn- ir eins og áður var sagt fjórða hvert ár. í ár, 1968, er Ólympíuár. Glæsileg- ir vetrarólympíuleikar voru haldnir í vetur í Grenoble í Frakklandi. í ágúst verða sumarleikarnir haldnir í Mexíkó. Þangað munu koma þúsundir íþróttamanna og kvenna frá flestum þjóðum heims. Ólympíueldurinn verður ennþá einu sinni kveiklur í Ólympíu, en þaðan verður hann flutt- ur flugleiðis til Mexíkó. Frá flugvell- inum munu íþróttamenn hlaupa með hann til leikvangsins, þar sem hann mun loga þá 16 daga, sem leikarnir standa. Meðfram leikvanginum blakta fánar allra þátttökuþjóðanna, en hæst ber fána Ólympíuleikanna, sem er hvítur með 5 hringum, gulum, grænum, bláum, rauðum og svörtum. Fáninn er tákn þess, að Ólympíu- leikarnir eigi að sameina æsku allra þjóða frá 5 heimsálfum án tillits lil 1964 í Tokió. litarháttar, stjórnmálaskoðana eða trúarbragða þeirra. Vafalaust verða Ólympíuleikarnir í Mexíkó einir þeir glæsilegustu, sem haldnir hafa verið. En það sem mest er um vert er, að hinn sanni íþrótta- andi megi ríkja rneðal allra þátttak- endanna, hinn sami og ríkti meðal Hellena forðum og sá, sem ríkL hefur á öllum Ólympíuleikum til þessa. Ólympíueiðinn, sem ke}3pendur sverja við setningu leikanna,má aldrei brjóta. Hann er sá helgidómur, sem fylgt hefur þessari íþróttahátíð frá upphafi. Við skulurn öll vona, að Ólympíu- leikarnir verði haldnir áfram uffl ókomna framtíð til aukinnar vináttu og bræðralags allra þjóða, og aldrei framar þurfi fyrir ófriðar sakir að fella þá niður. Þjálfun. Sá, sem ætlar sér að verða góður íþróttamaður, verður einkurn að iiugsa um tvö þýð- ingarmikil atriði. í fyrsta lagi þarf hann að temja sér liolla lifnaðarliætti. Með því er átt við, að hann neyti lioilrar fæðu, hafi reglu á svefntíma sínum og sé bindindissamur á tóbak og áfengi. í öðru lagi þarf hann að þjálfa vel likaina sinn. Þar GREIN ÞESSI UM ÞJÁLFUN ÁTTI AÐ KOMA í APRÍL- BLAÐINU, EN VEGNA MISTAKA FÉLL HÚN ÞÁ NIÐUR OG BIRTIST HÚN ÞVÍ HÉR, ÞÓTT SEINT SÉ. sem ég veit, að ég þarf ekki að ræða fyrra atriðið við ykkur, ætia ég að snúa mér bcint að því siðara. Öllum er-nauðsynlegt að hata likama sinn vei þjálfaðan. Ekki aðeins i])róttamönnum heldur og þeim, sem slunda líkamlega vinnu. Hraustur og vel ])jálf- aður likami þolir betur erfiða vinnu og er því siður hætta hú- in af ýmsum sjúkdómum, seni af henni geta hlotizt. Þá ma henda á, að margir hafa bjarg- að lífi sínu og annarra vegna likamshreysti sinnar. Með þjálfun er átt við æfing- ar, sem gerðar eru reglulega 244

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.