Æskan - 01.07.1968, Síða 42
Innlendur
^ 11. api'íl var undirritað sam-
komulag milli íslenzkra og
brezkra flugmálayfirvalda um
flugréttindi Loftieiða hf. til og
frá Bretlandi með RR-400 flug-
vélum félagsins.
’-T1 30. apríl flaug Björn Páls-
son farbegaflug til Scoresby-
sunds á Cessna 180-flugvéi.
Hann flutti 4 farþega og póst
i 2 ferðum. Veður var gott, en
kalt.
^ 1. mai geltk sumaráætlun
Flugfélags íslands i gildi, og
verða nú allar ferðir frá
Reykjavík til staða innanlands
flognar með Fokker Friendship.
Einnig verða allar ferðir frá
Reykjavík flognar án viðkomu
til viðkomandi staða, nema til
Hornafjarðar, en þá er líka
lent á Fagurbólsmýri. Eins og
^ 27. apríl var tilkynnt, að
samningar væru að takast milli
Landlielgisgæzlunnar og Varn-
arliðsins um leigu á tveimur
Grumman Albatross flugbátum,
sam eru mjög góðar flugvélar.
Er ætlunin, að þeir leysi Sky-
master-flugvélina TF-SIF af
hólmi.
s.l. vetur verður DC-3 á Akur-
eyri og flýgur bún á milli staða
norðanlands.
Draumurinn um að geta flog-
ið hefur frá örófi alda beillað
ltug mannsins. Fornaldarþjóð-
irnar veittu guðum sínum og
goðverum þann mátt, er þeir
sjálfir áttu ekki: að geta svif-
ið þöndunt vængjum urn loftin
blá yfir lönd og lög. Enda Jtótl
stutt sé síðan flugtæknin sigr-
aðist á náttúruöflunum, er flug-
hugsjónin samt jafngömu! sög-
unni.
Það var flug fuglanna, sem
beillaði Leonardo da Vinci,
Otto Lillienthal, Wright-bræð-
ur og marga fleiri til hinna
djörfu tilrauna, sem gáfu eftir-
komendunum mátt og þor til
]jess að sigrast á geimnum. Svif-
flug fugla eins og arnarins og
aibatrossins vísaði þeim veg-
inn, og það var svifflugið, sem
opnaði mönnum hinar víðu
gáttir háloftanna.
Starf brautryðjendanna hef-
ur borið rikulegan ávöxt. Jafn-
framt því sem þeir ruddu vél-
fluginu braut, liafa þeir skapað
okkur, nútímabörnunum, ómet-
anleg tækifæri til hollrar
Arngr. Sigurðsson:
FLUG
ánægju og skemmtunar við
iðkun svifflugsins.
Það er engin tilviljun, að
nútimamaðurinn er gagntekinn
slíkum áhuga á sviffluginu sem
raun ber vitni. Að líða um loft-
ið sterkum, þýðum og þögl-
um vængjum, að finna sjálfan
sig sameinast flugunni og
geimnum, gerir svifflugið svo
óendanlega heillandi.
Svifflugsíþróttin i ölluin
löndum er á hraðri leið að
settu marki, — að vcrða þjóðar-
íþrótt, íþrótt iþróttanna.
Flugmyndasamkeppni.
Nú er sumar og tími ferðalaga hafinn og má
búast við því, að þið komið oft í námunda við
flugvélar, jafnvel þótt þið ferðizt ckki mcð þeim.
Nú hefur Flugþátturinn ákveðið að efna til
fyrstu flugmyndasamkeppni sinnar meðal allra
lesenda Æskunnar. Sendið Flugþættinum allar
góðar myndir af flugvélum — á flugi eða á
jörðu niðri. Þið hafið allt sumarið fyrir ykkur,
en sendið myndirnar fyrir septembcrlok.
Flugþátturinn mun siðan birta 5 skemmtileS"
ustu myndirnar og ljósmyndararnir fá í verð-
Iaun erlendar flugmyndabækur með hundruðun1
teikninga og mynda af flugvélum. Ef ljósmynd-
arinn er ekki sérstakur flugáhugamaður, getur
hann valið sér hverja af bókum Æskunnar, eem
hann vill, allt að 100 kr. virði!
Á LANDI EÐA í LOFTI!
254