Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1968, Side 44

Æskan - 01.07.1968, Side 44
Sigrún Harðardóttir. Gög«Gokke Kæra Æska. Nokkrum sinn- um á síðastliðnum vetri hafa komið kvikmyndir í sjónvarp- inu með gamanleikurunum Gög og Gokke. Mér finnst þessar myndir þeirra félaganna vera mjög skemmtiiegar, og þar sem ég þekki ekkert til þessara leik- -S ypurmng,ar ocf Svar til Svövu: Sigrún Harð- ardóttir er 19 ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri. Hún mun hafa komið fyrst fram op- inberlega á skólaskemmtun 12 ára gömul i Miðhæjarskólanum í Iteykjavík, þar sem hún söng dúett ásamt hekkjarsystur sinni. Siðar kom hún nokkrum sinnum fram með kór skólans og söng þá meðal annars i út- varp. í gagnfræðaskóla hélt hún áfram að koma fram á skemmtunum skólans, og kom ])á meðal annars fram i Há- skólabíói. Hún hóf nám við Menntaskólann á Akureyri haustið 1966, og hefur sungið nokkrum sinnum síðan á skemmtunum á Akureyri með undirleik hljómsveitar Ingi- mars Eydals. Sumarið 1967 söng hún á Hótel Sögu í þrjár vikur með hljómsveit Reynis Sigurðs- sonar. I maí sl. kom fyrsta plata hennar á markaðinn. Lög- in á þeirri plötu eru: Ástar- kveðja, Æskuást, Ein á ferð og Kæra Karitas. Fjórtán hljóð- færaleikarar úr ýmsum hljóm- sveitum koma fram á plötunni. Sigrún hefur lært söng í tæpt ár hjá Mariu Markan og hjá Jóni Þórárinssyni söngkennara, þegar liún var við nám sitt i Miðbæjarskólanum. Eftir stúd- entspróf hyggst Sigrún fara til söngnáms til Bandaríkjanna, og er hún lielzt að hugsa um að leggja fyrir sig blues eða jazz. ara, langar mig að hiðja þig að segja mér eitthvað um þá, svo sem hvort þeir séu að leika ennþá í kvikmyndum. Sigurður. Svar: í febrúar 1965 lézt Stan Laurel, ]>að er sá magri i gam- anleikaraparinu Gög og Gokke. Sá feiti, Oliver Hardy, lézt ár- ið 1957. Stan Laurel var frábær leikari og hafði þegar unnið séi' nokkra frægð, þegai' hann liitti Oliver Hardy, eða Gokke. Á árunum 1917—24 var hann „stjarna" í 17 þöglum kvik- myndum. Árið 1925 kom síðan fyrsta Gög og Gokke-kvikmynd- in, „Náttuglan“, og vakti hún geysilegar vinsældir, sem hald- izt hafa fram á þennan dag. Þeir fengu mörg verðlaun fyrir myndir sinar, þar á meðal hin eftirsóttu Óskarsverðlaun árið 1932. Hallgrímskirkja í Reykjavík Svar iil Unnar: Um þessar mundir er verið að steypa neðsta htuta turnspírunnar á Haltgrímskirkju á Skólavörðu- hæð í Reykjavík, og jafnframt er unnið að upþsetningu fóllts- lyftu í turninn, svo nú fer sá tími væntanlega að nálgast, að almenningur geti notið hins mikla og fagra útsýnis úr turni kirkjunnar. Húsnæðið á 1. hæð í nyrðri átmu turnsins er nú fullinnréttað — eða svo til — og hefur barnastarf farið þar fram í vetur. Biblíufélagið hef- ur einnig haft þar bækistöð sina. Safnaðarheimiti Ilall- grímskirkju verður tekið i notkun fyrir fjölbreytt, kirkju- legt stai-f, almenna safnaðar- fundi, æskulýðsstarf, undirbún- ing fermingarbarna, starfsemi Hallgrlmskórsins og Kvenfé- tags og Bræðrafélags Hall- grímskirkju, ank þess sem þar verða skrifstofur sóknarprest- anna o. fl. Kapellan í kórkjall- aranum verður enn uin sinn notuð fyrir guðsþjónustur, cða að minnsta kosti þar til Jokið verður innri frágangi á suður- álmu 1. hæðar turnsins. Hljómplötur. Kæra Æska. lig safna hljómptötum en veit ekki, hvernig bezt er að handleika þær og geyma til að þær endist sem lengst. Gætir þú, Æska mín, eklti frætt mig eitthvað um það? Friðrik. Svar: Ekki máttu sncrta við sjálfum riflunum, sem nálin gengur eftir heldur aðeins útjöðrum plötunnar eða miðju. Fingraförum og fitu, sem festist í hinum fínu nálarrásum plöt- unnar, getur verið erfitt að ná af aftur, en liins vegar myndar það mótstöðu fyrir nálina, þegar platan er leikin, svo að nálin hoppar eða grefur sér leið inn í hinn granna vegg, sein að- skilur raufarnar. Geyma skal hljómplötur upp á rönd og táta þ*r standa svo þétt saman, að þær séu sem næst lóðréttar. Plötum hættir tit að svigna og verpast, ckki sízt ef þær verða fyrir hita. Því skyldi varast að geyma þær nálægt ofni eða öðru hitatæki, og alls ekki þar, sem komið gctur fyrir að sól skíni á þær. E1 undirstaðan er vel slétt, ætti einnig að vera óliætt að geyma plöturnar Járéttar í stafla. En þess verður ])á að gæta að stafl- arnir verði ekki of liáir og að sama plötustærð sé i hverjum- Plöturnar skyldi geyma þannig, að op liulstursins, sem platan er í, snúi upp, þá er engin hætta á, að þær detti út úr því, þegai’ ]iað er tekið úr hillunni. Einnig þarf að ganga svo frá, að ryk komist ekki inn í umslagiö og setjist á plötuna. Einhver mesti plötuspillir er einmitt ryltið. Við núninginn, þegar platan er spiluð, hleðst hún rafmagni, sem dregur að sér rykagnii' úr loftinu. Þvi þarf að þurrka vel af plötunni bæði fyrir og eftir notkun. Þetta verður að gerast með mjög mjúku efni, helzt sérstökum áhöldum, sem til þess fást i liljóðfæraverzlunum.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.