Æskan - 01.10.1968, Síða 28
FBÁ UNGLINGAMEGLUNNI
MYNDIR — Frá vinstri: Ánægjulegur hátíðafundur. Tveir gestanna,
þau Sesselja og Stefán, horfa hugfangin á eitt dagskráratriðið í
hópi yngstu félaganna. Þrír úr hópi embættismanna stúkunnar og
ungir gestir.
verandi gæzlumenn stúkunnar og skólastjórar á staðnum, þau
Stefán Jónsson og Sesselja Konráðsdóttir, svo og Ingþór Sigur-
björnsson, umdæmisgæzlumaður.
Okkur hafa nýlega borizt þrjár myndir frá þessum hátíðafundi
og er okkur mikil ánægja að birta þær hér á síðunni.
Við flytjum stúkunni BJÖRK beztu þakkir fyrir störfin góðu
og óskum henni allra heilla í framtíðinni.
Björk nr. 94
Barna- og unglingastúkan BJÖRK nr. 94, Stykkishólmi, er i
hópi traustustu og starfsömustu stúknanna okkar. Gæzlumaður
hennar, Árni Ilelgason, er óþreytandi áhugamaður og kennarar
staðarins ágætir aðstoðarmenn hans.
BJÓRK átti merkisafmæli á síðasta starfsári og var þá að sjálf-
sögðu haldin veglcg veizla og hátíðafundur með fjölþættri dag-
skrá félaga.
Auk hinna mörgu félaga stúkunnar sátu fundinn margir góðir
gestir, sem fiuttu stutt ávörp. Meðal þeirra voru t. d. tveir fyrr-
Úr leikritinu Ævintýraleikur.
Barnastúkan LJÓSIÐ nr. 156 í I.angholts-
sókn í Reykjavík starfaði vel síðastliðinn
vetur, eins og undanfarin ár. Fundir voru
reglulega á hálfsmánaðarfresti allan starfs-
tímann og sýndu börnin frábæran áhuga
í störfum. Komu þau ætíð með einhver
félagsleg atriði á hverjum fundi og mörg
þeirra mjög athyglisverð.
Stúkan hefur alltaf liaft þann sið, að
bjóða foreldrum og aðstandendum barn-
anna á einn fund á ári, venjulega í marz,
— foreldrafund, eins og við köllum hann,
— og koma þá félagarnir fram í beztu hlut-
verkunum, sem þeir hafa flutt um vetur-
inn. Fundir þessir eru jafnan vel sóttir og
börnunum til mikils sóma.
Barnastúkan LJÓSIÐ er enn eina stúkan,
sem starfar á vegum kirkjunnar. Þegar
Bindindisráð kristinna safnaða var stofn-
Úr leikritinu Presturinn og hringjarinn.
að fyrir nokkrum árum, hóf Langholtssöfn-
uður í Reykjavík strax þessa félagsstarf-
semi og hefur haldið henni óslitið síðan.
Er nú þess að vænta, að hinir aðildar-
söfnuðirnir í Bindindisráði kristinna safn-
aða — og helzt sem allra flestir söfnuð-
ir þjóðkirkjunnar — taki fordæmi Lang-
holtssafnaðar til fyrirmyndar og stofni ti!
slíkra félagsstarfa innan vébanda sinna i
haust eða vetur. Islenzkir söfnuðir eru enn
alls ckki nógu viFkir í bindindisstarfinu.
Við þökkum LJÓSINU fyrir ágæt störf
og óskum því allra heilla á komandi ar-
um. Og Langholtssöfnuði þökkum við mjög
athyglisvert fordæmi, sem æskilegt er að
hefði sem víðtækust áhrif.
Nokkrar myndir úr félagsstarfi L.TÓSS-
INS frá siðasta vetiii fylgja hér með.
Ljósið
nr. 156
Úr leikritinu Reglan.
404