Æskan - 01.10.1968, Qupperneq 31
Lyftingar.
Þórólfur Sveinsson Jiefur
skrifað iþróttasíðunni og beðið
uin upplýsingar um lyftingar.
Enda ])ótt bessi iþróttagrcin
sé búin að vera á dagskrá Ól-
ympíuleikanna frá endurreisn
]>eirra árið 1896, er hún svo til
ó])eklit Jiér á landi. Flestir æfa
Ellen Ingvadóttir.
Ungt afreksfólk
lyftingar sér til gamans og
heilsubótar, en mjiig margir
einnig með keppni fyrir aug-
um.
Á Ólympíuleikunum er !ve])pt
i lyftingaþriþraut. Hver þátt-
taliandi fær þrjár tilráunir við
hverja þraut. Fyrsta þrautin
nefnist Pressa. Þá lyftir kepp-
andinn lóðinu frá ln-jóstliæð og
þar til hann hefur rétt alveg
úr drmunuin. Hann má ekki
lircyfa fætur né aðra Jikams-
liluta en armana. Önnur þraut-
in nefnist Snörun. Þá er Jóðinu
snarað í einu átaki frá gólfi og
upp fyrir liöfuð og tekin liné-
lieygja um Jeið. (Sjá mynd 1).
Siðasta þrautin nefnist Jafn-
henda. Þá er Jóðinu fyrst lyft
frá gólfi i brjósthæð eins og
sýnt er á mynd 2. Síðan er lóð-
inu lyft alla leið upp mcð því
að rétta snöggt úr linjám og
örmum. Heimsmet í þyngsta
flokki á rússneskur maður með
samtals 594 kg (201,5 — 174 —
218,5).
Á undanförnum árum bafa
nokkrir áliugasamir piltar
stundað lyftingar bér á landi.
•Tveir þeirra liafa náð árangri
a alþjóðamælikvarða. i milli-
]>ungaflokki er heimsmetið i
þrautinni 515 kg. í þeim flokki
er Óskar Sigurpálsson og befur
hann náð bezt 440 kg. Guð-
mundur Sigurðsson hefur lyft
samtals 420 kg, en i hans flokki,
léttþungaflokki, er heimsmetið
i lyftingaþriþraut 482,5 kg.
Óskar hcfur nú verið valinn
til að keppa í lyftingum á Ól-
ympiuleikunum i Mexíkó.
Ein cfnilegasta sundkona ís-
lendinga í dag lieitir Ellen
Ingvadóttir.
Ellen fæddist í Noregi 13.
janúar 1953 og er ]>vi aðeins
15 ára gömui. Hún byrjaði að
æfa sund þegar hún var 13 ára
gömul og bafa framfarir benn-
ar í þessi tvö ár orðið mjög
miklar. Nú i sumar hefur hún
ná'ö sérstaklega góðum árangri.
I landskeppni íslendinga og
íra sigraði Ellen í 200 m bringu-
sundi og varð önnur i 100 m
bringusundi. Þannig átti hún
sinn góða þátt í því að íslend-
ingar fóru með sigur af hólmi
í þeirri keppni. í keppni ís-
lendinga og Vestur-Skota, sem
fram fór skömmu síðar, sigr-
aði Ellen aftur i 200 m bringu-
sundi. Næst keppti liún á Norð-
urlandameistaramóti unglinga,
sem fram fór í Osló. Þar varð
hún önnur í 200 m bringu-
sundiog setti nýtt islenzkt met.
Það met bætti bún svo nokkru
síðar á miklu sundmóti, sem
haldið var í Stokkhólmi og
setti auk þess met i 100 m
bringusundi.
Þessi met bætti liún svo enn
þegar heim kom. 200 m bringu-
sund synti hún á 2:56,2 mín.
og 100 m bringusund á 1:22,0
min. og náði þar með þvi lág-
marki, sem sett var til ]>átt-
töku i Ólympiuleikunum í
Mexikó i haust.
Enda ])ótt liún hafi náð lengst
i liringusundi, er hún einnig
vel liðtæk í öðrum greinum
sundsins. Þjálfari hennar er
Siggeir Siggeirsson og segir
hann að liún sé mjög reglusöm
og dugleg að æfa sig. Hún æfir
á hverju kvöldi frá kl. 6—8 og
auk þess á morgnana þegar liún
getur komið því við.
Við óskum Ellen góðrar ferð-
ar á Ólympíuleikana, en bún
verður yngsti fulltrúi íslend-
inga þar.
407