Æskan - 01.10.1968, Síða 39
Vinsælasti
❖
söngvarinn. |
Svar til Aðalbjargar: Tuttugu og átta ára
gamall cr söngvarinn Tom Jones nú hæst
launaði skcnnntikraftur í Englandi. Fyrir
að koma fram á skemmtunum getur hann
fengið á einni viku 1,1 milljón króna. Ef
við bætum ofan á þetta smáræði þeim upp-
hæðum, sem hann fær fyrir plötur sínar,
sjónvarpsþætti og söngferðir, ])á getur víst
enginn efazt um, að námuverkamanns-
sonurinn frá Wales er sólarmegin í lífinu.
Tom er frá Suður-Wales, þar sem hann
hóf ferli sinn sem sniðari i hanzkaverk-
smiðju. Hann var samt ekki nema 12 ára
þegar liann ákvað að verða atvinnusöngv-
ari, og i öllum sínum frístundum söng
iiann hvar sem færi gafst. Það er ótrúlegt
en satt að ekki eru nema 4 ár síðan hann
hóf söngferil sinn sem söngvari á kaffi-
húsi. Hann á nú glæstari framtíð fyrir
höndum en nokkru sinni fyrr. Hann hefur
unnið sér sess sem fráhær listamaður, og
tilboðin streyma til hans. Núna á Tom,
eða Thomas Jones Woodward, eins og hann
heitir réttu nafni, iburðarmikið hús utan
við London, veðhlaupahest, Rolls Royce og
Mercedes Benz bíla, og svo auðvitað gilda
innstæðu í banka.
TOM
JONES
PeterTork Mike Nesmith Micky Dolenz DovyJones
The Monkees
Svar tii Svövu: Það sem fyrst og fremst
hefur stuðlað að vinsældum Monkees, er
að þeir félagar hafa alla tíð leikið hljóm-
list með 13 til 1G ára unglinga i huga, og
þeir hafa aldrei breytt út af þeirri stefnu
sinni. Lögin þeirra eru einföld, glaðleg og
auðlærð. Fáar hljómsveitir hafa haft í jafn
mörg horn að líta og Monkees. Milli þess
sem þeir hafa leikið i sjónvarpsþáttum
sinum, iiafa þeir gefið sér tima til að fara
i hljómleikaferðalög og leika á liljómplöt-
ur. íslenzka sjónvarpið hefur sýnt nokkra
Monkees-þætti, og liafa flestir þeirra átt
mikium vinsœldum að fagna hjá ungling-
um, og eftir því sem hlaðið hefur frétt,
má búast við framlialdi á þáttuin þessum í
islenzka sjónvarpinu á komandi vetri. —
Á síðastliðnu sumri léku þeir félagar í sinni
fyrstu kvikmynd, og var myndin tekin í
Bandaríkjunum og Japan, en þráður henn-
ar er á þá lund, að þeir fjórmenningarnir
eru á ferðalagi á mótorhjólum og lenda i
ýmsum skemmtilegum ævintýrum. — Davy
er sagður frcmur ]>urr á manninn. Mike
Nesmith er alltaf með hugann við fjöl-
skyldu sina og nýja húsið sitt í Hollywood.
Micky er sagður vingjarnlegastur þeirra
félaga, hefur opið hús fyrir vini sina frá
morgni til kvölds og þar er alltaf glatt á
lijalla. Peter Tork fer sínar eigin götur og
liefur vist ekki áliuga á neinu. Hann er
sagður oft mjög ejnmana.
Rúnar
Gunnarsson.
SVAR TIL DÓRU: Rúnar
Gunnarsson er fæddm- i
Reykjavik 10. marz 1947. Hann
stundaði nám Við Gagnfræða-
skóla Austurhæjar. Eftir það
sótti hann námskeið í hagnýt-
um verzlunarfræðum við Verzl-
unarskólann. Gitarinn mun hafa
kveikt áhuga hans á músikinni,
og 14 ára að aldri eignaðist
liann rafmagnsgítar, sem hann
gat tengt við útvarp. Rúnar lék
með Dátum i tvö ár. Nú er
hann mikilvægur þáttur i
hinni ágætu hljómsveit Ólafs
Gauks, söngvari og bassaleik-
ari. Rúnar hefur samið nokkur
lög, sem náð hafa miklum vin-
sæidum, og má i því sambandi
nefna lögin „Gvendur á eyr-
inni“ og „Úr glugganum".
Rúnar ver frístundum sínum í
að teikna og mála, og úður cn
músikin náði alveg tökum á
lionum var hann um tima við
nám i Myndlistarskólanum við
Freyjugötu.
415