Æskan - 01.01.1972, Síða 2
Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, rítstjórn: Lækjargötu 10A, simi 17336, heimasimi 12042. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN
__ , GUÐMUNDSSON, skrifstofa: Lækjargötu 10A, heimasimi 23230. Útbreiðslustjóri: Finnbogi Júliusson, skrifstofa: Lækjar-
73. dfQ.
götu 10A, simi 17336. Argangur kr. 380,00 innanlands. Gjalddagi: 1. april. I lausasölu kr. 50,00 eintakið. — Utaná-
1. tbl. skrift: ÆSKAN, pósthólf 14, Reykjavik. Útgefandi Stórstúka islands. Prentun: Prentsmíðjan ODDI hf.
Janúar
1972
SKOTAR NÍZKIR?
Skotar eru taldir nízkir, eins og allar
Skotasögurnar bera með sér, en margir
trúa þeim. Hitt vita færri, að flestar nizku-
sögurnar búa Skotar til sjálfir sér til gam-
ans. Sannleikurinn er sá, að Skotar eru
allra manna gjöfulastir, og má í þvi sam-
bandi benda á Andrew Carnegie, sem gaf
allan sinn auð. Hann var Skoti. Og i Skot-
landi er gefið meira til mannúðarmála,
hlutfallslega, en I nokkru öðru landi í heimi,
að islandi ef til vill undanteknu. Það voru
lika Skotar, sem stofnuðu fyrsta mannúðar-
félagið i Bandarikjunum.
★
Úlfaldinn liggur alltaf meðan verið er að
setja á hann klyfjarnar, og hann veit sjálf-
ur upp á hár, hve mikið hann getur — eða
þykist geta — borið. Ef of mikið er lagt
á hann, liggur hann kyrr og stendur ekki
upp, hvað sem á gengur. Það er ekki hægt
að fá úlfaldann til að standa upp með
þyngri klyfjar en hann vill bera.
KAFARINN
Ef þú átt augnasprautu — glerpípu með
gúmmiblöðru á breiðari endanum — getur
þú búið þér til skemmtilegan kafara. Og
svo verður þú að hafa flösku með löngum
stút og tappa, sem er rúmur i stútnum. Þú
teiknar mannsandlit á gúmmihettuna með
teiknibleki og festir svo stálvír (eða pípu-
hreinsara) að ofan og neðan. þvi að þeir
eiga að vera hendur og fætur kafarans.
Svo fyllir þú flöskuna af vatni, alveg upp
í stút, stingur kafaranum ofan í flöskuna og
rekur tappann i, og þegar þú þrýstir á
hann, sekkur kafarinn hægt til botns, en
ef þú lyftir tappanum, þá kemur kafarinn
uþþ. Skýringin á þessu er sú, að kafarinn
sekkur, þegar loftið þéttist undir tappanum;
þá þrýstist nefnilega vatn inn í glerpipuna
og við það þyngist hún og sekkur. En lyfti
maður tappanum, þá minnkar loftþrýstingur-
inn i flöskunni, vatnið streymir út úr gleroþ-
inu, hún léttist og lyftist upp.
UNGIR vegfarenclur.
Þóft bifreiS hafi stöðvaS fyrir
þér við gangbraut, þó littu vel
til beggja hliða, meðan þú
gengur yfir götuna. Því miður
kemur það stundum fyrir, að
bifreið er ekið fram úr kyrr-
stæðri bifreið við gangbraut
og er því betra að sýna ætíð
sérstaka aðgæzlu, þegar farið
er yfir götu.