Æskan - 01.01.1972, Side 54
Ljósm.: N. N.
Ljósm.: Ólalur K. Magnússon.
LEIÐRÉTTING Á FLUGVÉLARSÖGU
Við biðjum viðkomandi afsökunar á því, að okkur láðist að
geta þess, að núverandi eigendur TF-LBP (nr. 68) eru þeir Jó-
hannes Fossdal og Sigurður Aðalsteinsson á Akureyri. Það var
einmitt Sigurður, sem lánaði hina ágætu flugmynd af TF-LBP.
NR. 75 TF-FSB, AIE
NAVION A
Skráð hér 27. okt. 1953 sem TF-FSB, eign Flugmálastjórnar-
innar. Hún var keypt í Bandarikjunum (N 4027 K).
Hún var smíðuð 1947 hjá North American Aviation, Inc.,
Municipal Airport, Los Angeles, Calif. Raðnúmer: NAV-4-1027.
3. des. 1963 var flugvélin seld Flugsýn hf. og einkennisstöfum
hennar breytt I TF-AIE (skr. 12. 12. 63).
19. des. 1964 magalenti flugvélin á Keflavíkurflugvelli (flugm.
hafði gleymt að setja niður hjólin), en flugvélin skemmdist ekki
mikið, og var hún gerð flughæf að nýju.
NAVION A: Hreyflar: Einn 185 ha. Continental E-185-9. Vænghaf:
10.18 m. Lengd: 8.38 m. Hæð: 2.62 m. Vængflötur: 17.18 m’.
Farþegafjöldi: 3. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 808—845 kg Hámarks-
flugtaksþyngd: 1.250—1.295 kg. Arðfarmur: 252—93 kg. Farflug-
hraði: 240 km/t. Hámarkshraði: 305 km/t. Flugdrægi: 800 km.
Hámarksflughæð: 4.750 m. 1. flug: 1948.
NR. 76 TF-KAO
PIPER CUB
Hún var smiðuð 29. nóv. 1945 hjá Piper Aircraft Corporation,
Lock Haven, Pennsylvania. Raðnúmer: 14913.
11. marz 1956 fauk hún mannlaus á bíl og fór á hvolf á Reykja-
vikurflugvelli. 18. maí 1956 var flugvélin við nauðlendingaræfingar
við Korpúlfsstaði og þá vildi það til, að hún skall svo harkalega
til jarðar, að hjólin brotnuðu undan henni. Gert var við þær
skemmdir.
Flugvélin eyðilagðist i nauðlendingu við bæinn Sigluvik í Land-
eyjum.
Lofthæfisskirteini rann út 8. april 1961. Afskráð 16. nóv. 1962.
PIPER J-3C-65 CUB: Hreyflar: Einn 65 ha. Continental A-65-8.
Vænghaf: 10.72 m. Lengd: 6.82 m. Hæð: 2.03 m. Vængflötur:
16.58 rrp. Farþegafjöldi: 1. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 329 kg. Há-
marksflugtaksþyngd: 553 kg. Arðfarmur: 113 kg. Farflughraði:
115 km/t. Hámarkshraði: 195 km/t. Flugdrægi: 340 km. Hámarks-
flughæð: 4.000 m. 1. flug: 1938.
NR. 77 TF-HIS
CESSNA 180
Skráð hér 24. marz 1954 sem TF-HIS, eign Björns Pálssonar.
Flugvélin var keypt í Bandaríkjunum (skrás. N 1610C). Hér var
hún skráð til farþega- og sjúkraflugs.
Hún var smíðuð 1953 hjá Cessna Aircraft Company, Wichita,
Kansas. Raðnúmer: 30310.
9. desember 1954 er Slysavarnafélag islands skráð meðeigandi
Björns. Flugvél þessi hefur ávallt reynzt vel, og eru þeir ótaldir,
sem eiga henni lif sitt að launa.
Skráð hér 29. desember 1953 sem TF-KAO, eign flugskólans CESSNA 180: Hreyflar: Einn 225 ha. Continental 0-470-A (siðar
Þyts hf. Keypt í Bandarikjunum (N42624); ætluð hér til einka- -J). Vænghaf: 11.00 m. Lengd: 7.86 m. Hæð: 2.32 m. Vængflötur:
og kennsluflugs. 16.16 m’. Farþegafjöldi: 3. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 723 kg. Há-
48