1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 30

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 30
1. MAÍ 26 að gera. Hann fær 17V2 mark á viku frá framfærzlunefndinni. 8 mörk og 90 fara í húsaleiguna, þá eru eftir 8 mörk og 60 pf. á viku. Rúmlega mark á dag handa tveimur fullorðnum. Það verður að nægja til matar og fata, og fyrir gas og kol að vetrinum, fyrir sápu og þvotti, skósólum og vindling- um. 60 pf. handa hverju á dag til að lifa af“. ,,Þetta þekkjum við allt saman, góða frú. Við sitjum öll við sama borðið. Bráðum verður þetta allt öðru- vísi”. Konan fór að hlæja. ,,Þið við sama borðið og við! Þið! Bílaskattinn hefir Hitler afnumið, en smjörlíkið, sem kostaði 64 pf., þegar Hitler kom til valda, kostar nú 71. Það er dálaglegur sósíalismi. En þið spígsporið í brúnum apablússum, bara til þess að bílaeigendurnir sleppi við að borga skatt.“ Foringinn gaf merki. Nazistarnir tveir hættu að hlæja og tóku í axlir henni. ,,Jæja, loksins“, kallaði hún. „Þarna hafið þið loksins náð í mig. Haldið þið mér nú almennilega, annars slít eg mig lausa og legg á flótta, og svo skjótið þið mig á flóttanum, eins og þið gerðuð við manninn minn . . . . “ ,,Áfram!“ skipaði foringinn, en kon- an orgaði hástöfum: „Þið skjótið mig, af því að eg hefi aðra skoðun en þið.“ — Annar maðurinn, sem hélt henni, leit aftur. Foringinn kankaði kolli til hans, og nú gerðist atvik, sem Schirmer skipstjóra varð flökurt af að sjá, og hafði hann þó hundrað sinnum lent í fárviðri og tíu sinnum í skipreika. Nazistinn sló konuna í höfuðið með gúmmíkylfunni. Það varð steinshljóð á stéttinni. Einu sinni. Tvisvar. Konan varð máttlaus í hnjáliðun- um, og það fór að korra í henni. •— Spölkorn frá staðnæmdist önnur lest. Eins og í þoku sá Schirmer verka- mennina. Lestin fór að hreyfast, og Schirmer sá mennina bak við rúðurn- ar. Þeir voru fölir og harðir drættir um munninn. „Nafn mitt er Schirmer skipstjóri“. Hann beindi orðum sínum til foringj- ans; feitur líkami hans skalf af við- bjóði. Hann setti fram ístruna og æpti svo hátt, að heyrðist inn í hvert horn í stöðvarhúsinu: „Og þetta látið þér viðgangast? Að kvenmaður sé lamin?“ Nazistinn horfði á hann. „Hvað kemur það yður við, herra minn? Má eg sjá vegabréfið yðar?“ „Mitt?“ fnæsti Schirmer, en Naz- istinn grenjaði allt í einu: „Þegið þér! Vegabréfið!“ í annað sinn kom Kucki til bjargar. „Þetta er Schirmer, skipstjórinn okkar á „Kulm“,“ sagði hann í ásök- unarróm. „Það er ekki nema klukku- tími síðan við vörpuðum akkerum. Við höfum verið að heiman í þrjá mán- uði“. „Þú þarna litli orðhákur“, sagði Nazistinn hlæjandi. „Langar þig ekki til að ganga inn í Hitlersæskuna? Þú ættir að koma og láta skrásetja þig kl. 10 í fyrramálið . . . .“ „Nei, það geri eg ekki“, greip Kucki fram í fyrir honum. „Hitler er ekki maður fyrir mig. Systir mín, sem heit- ir Pála, segir alltaf . . . .“ „Jæja þá“, sagði Nazistinn hvat- skeytslega, „eruð þið búnir að vera að heiman í þrjá mánuði? Þið eigið

x

1. maí - Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.